Júní
Grétar Már Þorkelsson umsjónarmaður Búnaðarsambands
Grétar Már Þorkelsson umsjónarmaður Búnaðarsambands

20.06.2004 Fréttir fruma

Fluttur með Búnaðarsambandið í Nýheima

Umsjónarmaður búnaðarsambands A-Skaft, Grétar Már Þorkelsson hefur flutt sig um set og er kominn með afgreiðslu fyrir bændur og búalið í Nýheimum, nánar tiltekið í aðstöðu Frumkvöðlaseturs Austurlands. Búnaðarsambandið hefur verið með aðstöðu sína á Rauðabergi 2 á Mýrum, en af hverju að flytja hana úr sveitinni út á Höfn? “Þetta var vilji bændanna, þeim finnst að þeir eigi auðveldara með að nálgast mig hér því þeir eigi alltaf erindi á Höfn og finnst gott að geta sameinað ferðirnar á einn stað” segir Grétar. Ég fékk góða aðstöðu hérna og er afskaplega ánægður með þetta allt. Hvað búskapinn í sýslunni varðar segir Grétar að hann gangi mjög vel, sauðburður búinn og bændur almennt farnir að heyja. Nokkuð er síðan bændur í Nesjum byrjuðu að slá og þar er fyrra slætti víða að ljúka. Heyskapartíð hefur verið sérlega góð og grasspretta mikil.

Áburðarnotkun er 30% minni en verið hefur og sumir bændur báru ekkert á tún sín. Í venjulegu árferði hefur heyskapur hafist um mánaðarmót júní-júlí svo nú sjá bændur hér fram á bjartari tíma hvað heyskapinn varðar. Grétar segir að heyið í gömlu rúllunum, sem orðið er lélegt eða ónýtt sem fóður nýtist vel til landgræðslu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica