Júní

Hof í Öræfum  @Mats W

Þriðja árið sem Frost og funi reka ferðaþjónustuna á Hofi - 30.06.2004 Júní

Fyrir þrem árum keyptu hjónin Knútur Bruun og Anna Sigríður Jóhannsdóttir ásamt dóttur Önnu, Kristínu Kjartansdóttur, ferðaþjónustuna á Hofi í Öræfum með húsum og öllu tilheyrandi. Þetta er þriðja sumarið sem við rekum ferðaþjónustuna hér á Hofi og líkar vel og erum búin að taka hér allt í gegn segir Knútur. Búið er að endurnýja öll húsgögn í Hlöðunni, gamla þinghúsinu og sumarhúsunum og í þessum húsum eru 41 gistirúm, allt uppbúin rúm. Lesa meira
 
Anna Björg Guðmundsdóttir og Ingvi Sigurðsson í Skinney-Þinganes

Humar haldið lifandi til útflutnings - 30.06.2004 Júní

Það hefur farið lítið fyrir mjög merkilegu verkefni sem verið er að vinna hjá Skinney-Þinganes og í Frumkvöðlasetrinu á Höfn en það gengur út á að athuga hvort mögulegt er að veiða, geyma og flytja lifandi humar frá Hornafirði til markaðar í Evrópu á hagkvæman hátt. Hugmyndin kom upphaflega frá Frumkvöðlasetri Austurlands ehf., síðar komu Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Skinney- Þinganes hf. til samstarfs við verkefnið. Þetta verkefni hefur fengið styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og AVS rannsóknasjóði í sjávarútvegi. Lesa meira
 
Sigurður prestur, Egill Jónasar, Brói, Siggi Hjalta og Ari Jóns

Engum málum vísað frá, þau eru leyst á staðnum - 29.06.2004 Júní

Fyrir um það bil tuttugu árum fóru nokkrir karlar á Hornafirði að hittast á laugardagsmorgnum á Hótel Höfn, borða morgunverð saman og ræða þjóðfélagsmálin. Laugardags-karlarnir hafa haldið sínu striki og mætt vikulega, en auðvitað hafa miklar mannabreytingar orðið á þessu tímabili, nokkrir flutt burtu og aðrir komið í staðinn. Ari Jónsson hefur verið fundarstjóri hjá okkur gegnum árin sagði Örn Arnarson, einn félaganna, og vísaði svo öllum fyrirspurnum til Ara sem tók því vel að upplýsa okkur um þá félaga. Lesa meira
 
Vika 27 - 28. júní 2004

Fylgst með stöðu á gangnagerð undir Almannaskarð - 29.06.2004 Júní

Vegagerð ríkisins hefur útbúið teikningar sem sýna stöðu á gangagerðinni undir Almannaskarð. Teikningarnar eru gerðar eftir upplýsingum sem berast frá eftirlitsaðila Vegagerðarinnar til Vegagerðarinnar í Reykjavík sem teikna myndina eftir þeim upplýsingum. Um leið og teikningin er klár þá birtist hún hér á vefnum undir “Forsíðu” samdægurs sem þýðir að nú geta áhugasamir um jarðgöngin fylgst með bæði hér á vefnum og á SkjáVarpi sem einnig birtir stöðu framkvæmdarinnar. Lesa meira
 
Tekist á í götuhokkí á planinu við Nýheima

Mikill áhugi á götuhokkí á Höfn - 29.06.2004 Júní

Skautadeild Sindra stendur nú fyrir götuhokkí æfingum og verða þær í Íþróttahúsi Heppuskóla. Ráðinn hefur verið þjálfari fyrir deildina og er það Snædís Bjarnadóttir sem hefur verið að spila íshokkí með Skautadeild Akureyrar. Snædís er Hornfirðingur, dóttir Bjarna Jónssonar starfsmans Ratsjárstofnunar og Jóönnu Sigurðardóttur. Síðasta vetur voru allt að 20 krakkar á aldrinum 10-14 ára að æfa hokkí hjá Skautadeild Sindra. Æfingar verða á miðviku- og mánudögum kl.15 í íþróttahúsinu en unnið er að því að finna framtíðarhúsnæði fyrir deildina. Götuhokkí er eins og íshokkí nema að í stað skauta eru notaðir hjólaskautar Lesa meira
 
Í gróðursældinni í Steinadal, Suðursveit

80 til 90 þúsund skógarplöntum plantað - 29.06.2004 Júní

Í sumar er áætlað að planta 80 – 90 þúsund skógarplöntum í Austur Skaftafellssýslu. Mest verður plantað á Skálafelli í landi Ingibjargar og Torfa, þar verða gróðursettar 40 þúsund plöntur segir Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri hjá Suðurlandsskógum. þá verður einnig farið að gróðursetja í bæjarlundinn okkar við Drápskletta og ég á von á að starfsfólk Landsbankans komi fyrir helgina til að gróðursetja, þau komu í fyrra með sína maka og börn ,höfðu kaffi og nesti meðferðis og áttu þarna skemmtilega útivistarstund saman. Lesa meira
 
Hópurinn sem ætlar að keppa á Humarhátíð ásamt Hauki og Jóhanni

Nokkur pláss í söngvakeppnina - 28.06.2004 Humarhátíð Fréttir

Fyrsta æfing hjá krökkunum fyrir söngvakeppnina sem verður á Humarhátíðinni á laugardeginum kl.14 fór fram um helgina og mættu 9 krakkar og verða þau samtals með 6 atriði. Eins og á síðustu Humarhátíð þá er gert ráð fyrir 10 söngatriðum og því er enn pláss fyrir nokkra krakka sem vilja koma fram. Æfingarnar fara fram í Tónskólanum í Sindrabæ og þeir sem aðstoða krakkana er ekki af verri endanum, en það eru félagarnir Haukur Þorvalds og Jóhann Morávek. Á síðustu Humarhátíð vakti söngvakeppnin mikla athygli og komu þar margir krakkar fram sem eflaust eiga eftir að láta að sé kveða í tónlistarbransanum í framtíðinni. Lesa meira
 
Minjagripasalan í Skaftafellsstofu @Ragnar Frank

Gagngerar breytingar á Skaftafellsstofu - 28.06.2004 Júní

Skaftafellsstofa hefur verið opnuð aftur eftir gagngerar breytingar og hefur stofan verið stækkuð um það rými sem veitingastofan og verslunin voru í. Veitingasölu og matvöruverslun var hætt en í þess stað er þar smá kjörbúðarhorn með nauðsynlegustu matvöru og kaffihorn. Minjagripaverslunin hefur verið stækkuð,einnig er allt sýningarplássið í stofunni. miklu rúmbetra. Búið er að setja upp tölvubúnað og nettenging svo fólk geti kíkt inn á veraldarvefinn og t.d. komist í póstinn sinn. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn 28. júní 2004 kl.10:05

Veðurhorfur fyrir Humarhátíðarhelgi - 28.06.2004 Júní

Að sögn Árna Sigurðssonar veðurfræðings hjá veðurstofunni þá er spáin fyrir Hornafjörð næstu daga að búast má við suðlægri átt og víða þokusúld og rigningu af og til. Á miðvikudag má reikna með austlægri átt og vætu og í framhaldi af því er búist við norðlægari átt hér á suð-austurlandinu með einhverri úrkomu. Á miðvikudag munu liggja fyrir betri og nákvæmari spá fyrir Humarhátíðina og er því ekki rétt að örvænta að hún verði vætusöm. Í morgun hefur gengið á með smá skúrum á Höfn, hitastig um 10-12 gráður, logn og útlit fyrir hið besta veður í dag. Lesa meira
 
Í einu gróðurhúsinu í Dilksnesi, Begga í Garðshorni og Finndís

Fólk er mjög duglegt að gróðursetja - 27.06.2004 Júní

Í vor eru 13 ár frá því Gróðrarstöðin í Dilksnesi var opnuð. Eigendur hennar eru hjónin Finndís Harðardóttir og Bjarni Hákonarson. Fyrsta sumarið byrjuðum við bara á að selja stjúpur og svo hefur þetta vaxið svona ár frá ári og umfangið við þetta stækkað segir Finndís. Veðurfar hefur mikil áhrif á allan gróður og þar með svona starfsemi. Í sumar hefur verið mikil sala í sumarblómum og í tíðarfari eins og verið hefur í sumar er fólk duglegt að gróðursetja og það er duglegt að prófa nýjar tegundir. Vinsælustu sumarblómin segir Finndís að séu stjúpur, hengilóbelía og tóbaksvörn einnig skiptir máli hvaða plöntur henta best á hverjum stað. Hér hentar vel að rækta bellis (fagurfífil), morgunfrúr, stjúpur,daggarbrár silfurkamb skrautnál og hádegisblóm svo eitthvað sé nefnt, þetta eru allt dugleg blóm. Þá hefur sala á kryddjurtum og salat stóraukist og fólk er greinilega mikið farið að nota þessar náttúruafurðir enda bæði hentugt og holt. Lesa meira
 
Kvennakórskonur á fullu

Duglegar kvennakórskonur að störfum - 26.06.2004 Kvennakór Hornafjarðar

Þeir sem áttu leið um Hafnarbrautina fyrir framan Sparisjóð Hornafjarðar í morgun komust ekki hjá því að sjá þar konur sópa stéttina, reita arfa, skríða á fjórum fótum og hreinsa illgresi af mikilli nákvæmni sem hefur myndast á milli hellna frá því síðasta sumar. Ljúfir tónar Kvennakórs Hornafjarðar hljómuðu af geisladisk út um dyr Sparisjóðsins og ómaði söngurinn um nágrennið og veittum þeim aukin kraft við vinnuna. Þetta voru sem sagt kvennakórskonur að störfum en eins og flestum er kunnugt um þá er þeim engin takmörk sett í dugnaði. Þær hafa tekið að sér ýmis verk til fjáröflunar fyrir kórinn og var þetta eitt slíkt. Lesa meira
 
Staðið við garðinn fyrir mynni Hvannadals, sést ofan í Klukkugil @Fjölnir Torfason

Skemmtilegar söguferðir í Suðursveit - 26.06.2004 Júní

Það færist í aukana að fólk velur gönguferðir sem afþreyingu og til heilsubótar og ekki skemmir það fyrir að þeim fylgi fróðleikur um það sem fyrir augu ber. Hjónin Fjölnir og Þorbjörg á Hala í Suðursveit bjóða upp á gönguferðir með leiðsögn á söguslóðum Þórbergs Þórðarsonar þar sem hver gönguferð um 3-4 klukkutímar. Í ferðunum er farið á ýmsa sögustaði í nágrenni Hala þar sem lögð verður áhersla á náttúruskoðun, menningarminjar í landslagi og gamlar þjóðsögur og sagnir. Þetta er fjórða sumarið sem þau bjóða upp á þessar ferðir og hefur þeimv erið mjög vel tekið. Að sögn Þorbjargar þá er nokkuð um að ferðir eru sérpantaðar fyrir hópa og hafa verið allt að 20 manns í ferðahóp. Lesa meira
 
Grétar Már Þorkelsson umsjónarmaður Búnaðarsambandsins sést hér kjósa rétt

Kjörsókn jöfn og þétt í Hafnarskóla í morgun - 26.06.2004 Júní

Á kjörstað í Hafnarskóla í morgun var það að frétta að kjörsókn hefur verið nokkuð jöfn frá því að kjörstaðurinn opnaði kl. 9. Búist er við að kjörsókn aukist þegar fer að líða á daginn. Veður er gott á Höfn þrátt fyrir að það blási aðeins en veðurspáin til kl. 18 á morgun er austan 13-18 m/s og rigning eða súld, en úrkomulítið austantil fram á kvöld og búist við að það lægi smám saman á morgun, suðaustan 5-10 síðdegis. Hiti 8 til 14 stig. Aðrir kjörstaðir í Sveitarfélaginu eru í Hofgarði í Öræfum, Hrollaugsstöðum í Suðursveit, Holti á Mýrum, Mánagarði í Nesjum og fundarhúsi Lónmanna í Lóni þeir opnuðu nú í hádeginu. Lesa meira
 
Sindramenn á leiðinni á völlinn @ Sævar & Steini

Harkan sex hjá Sindramönnum - 26.06.2004 Júní

Meistaraflokkur karla hélt austur á Hérað s.l. miðvikudag að spila við Hattarmenn á Vilhjálmsvelli. Ekki var mikið um fína drætti í leiknum sem endaði með markalausu jafntefli. Sindramenn voru þó aðeins ágengari á mark andstæðinga en heimamenn þó svo að færin voru ekki mörg né góð. Tvo byrjunarliðsmenn vantaði í lið Sindra, Kristinn Þór er meiddur og Sindri Ragnarsson er með 6.flokkinn í Vestmannaeyjum. Af þeim Eyjaförum er það að frétta að þeir eru búnir að spila nokkra leiki í kolvitleysu veðri og hefur fótboltinn einkennst af því veðurfari sem er þar ytra. Allskyns uppákomur eru á meðan mótinu stendur, í Ómar Ragnarsson mætti með stjörnuliðið sitt sem er skipað af vel þekktum einstaklingum úr þjóðfélaginu einsog Árna Johnsen sem stóð í markinu. Lesa meira
 
Ari Þorsteins tekur á móti viðurkenningunni

Ari Þorsteinsson og Fruman hljóta hvatningarviðurkenningu - 25.06.2004 Fréttir fruma

Á aðalfundi Þróunarfélags Austurlands sem haldinn var í gær hlaut Frumkvöðlasetur Austurlands og Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri setursins hvatningarviðurkenningu frá Þróunarfélaginu, Frumkvöðlasetrið hlaut viðurkenninguna fyrir að innleiða áhugaverða nýjung í atvinnuþróunarstarf á Austurlandi og Ari fyrir stjórnun setursins af miklum myndarskap. “Ari Þorsteinsson verkfræðingur hefur stýrt uppbyggingu Frumkvöðlasetursins frá stofnun þess og farist það afar vel úr hendi. Ari býr yfir fagþekkingu og reynslu sem nýtist setrinu vel, er baráttuglaður og bjartsýnn að eðlisfari og á gott með að sjá um öll þau vandasömu samskipti sem óhjákvæmilega fylgja rekstri Frumkvöðlasetursins. Að auki er Ari hugmyndaríkur og skipuleggur störf sín vel og hafa þeir eiginleikar hans átt drjúgan þátt í því að á vegum Frumkvöðlasetursins er nú rekið fjölbreytt og kröftugt nýsköpunar- og þróunarstarf” sagði Auður Anna Ingólfsdóttir stjórnarmaður Þróunarfélagsins við afhendingu viðurkenningarinnar. Lesa meira
 
Danskur drengkakór söng við Hæðir í Skaftafelli  @Ragnar Frank

Þakkaði fyrir móttökurnar með því að syngja - 25.06.2004 Júní

Danskur drengjakór ferðast nú um Ísland og halda drengirnir tíu tónleika víðsvegar um landið. Kórinn er frá Holte á Sjálandi, bæ sem er skammt norðan við Kaupmannahöfn. Þetta er þekktur drengjakór sem í eru þrjátíu strákar á aldrinum 8 – 15 ára og með þeim eru fjórir hljóðfæraleikarar. Í gær skoðuðu drengirnir og fylgdarmenn þeirra þjóðgarðinn í Skaftafelli undir leiðsögn Ragnars Frank þjóðgarðsvarðar. Í lok heimsóknarinnar í Skaftafell þakkaði kórinn fyrir góðar móttökur og leiðsögn um þjóðgarðinn með því að syngja danskt þjóðlag framan við heimili Ragnars þjóðgarðsvarðar og Ullu eiginkonu hans, þeim til mikillar ánægju. Lesa meira
 
6. flokkur á leiðinni til Eyja

6. flokkur Sindra fór til Vestmannaeyja - 24.06.2004 Júní

Þeir lögðu af stað héðan eftir hádegi í gær og var ferðinni heitið til Vestmannaeyja þar sem þeir taka þátt í hinu árlega Shellmóti. Ferðin gekk mjög vel þrátt fyrir austan kalda eins og skipsstjórinn á Herjólfi komst að orði, enginn varð sjóveikur en það voru teknar sjóveikistöflur fyrir ferðina svona rétt til öryggis. Að sögn Gísla Más Vilhjálmssonar aðstoðarþjálfara var hópurinn kominn til Eyja um 22:30 og þá beið þeirra matur sem var mjög vel tekið eftir ferðalagið. 6 flokkur karla eru drengir 9 og 10 ára og keppa þeir í Eyjum í dag og næstu daga og halda síðan heim á mánudag. Í ferðina fóru nokkrir foreldrar með til halds og trausts eins og venjan er i slíkum ferðum. Lesa meira
 
Vinna við nýju upptökubrautina

Unnið að gerð upptökubrautar fyrir smábátana - 24.06.2004 Júní

Nú er verið að gera upptökubraut fyrir smábátana og er hún staðsett við smábátabryggjuna. Búið er að fylla í brautina og láta síga í tilskilinn tíma, en þessa stundina er verið að undirbúa svo hægt sé að steypa. Með þessu er Sveitarfélagið að bæta aðstöðu fyrir smábátaútgerðarmenn og um leið að leggja lokahönd á smábátahöfnina sem er með þeim glæsilegri á landinu. Að sögn Helga Más Pálssonar bæjarverkfræðings þá má reikna með að verkslok verði í byrjun júlí. Það er verktakafyrirtækið Rósaberg sem sér um framkvæmdina fyrir Sveitarfélagið. Lesa meira
 
Göngubrúin við Svartafoss @Ragnar Frank

Breskir sjálfboðaliðar í þjóðgarðinum - 24.06.2004 Júní

Undanfarið hafa breskir sjálfboðaliðar unnið hörðum höndum í þjóðgarðinum í Skaftafelli og skila góðu verki, þetta er harðduglegt fólk. Það er heldur ekki slæmt umhverfi sem við bjóðum þeim að vinna í hér upp við Svartafoss segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Búið er að endursmíða göngubrúna við Svartafoss einnig er búið að smíða göngupalla í austurheiðinni og nú sem stendur eru vaskar konur að aðstoða Ara Óskar hleðslumeistara við að hlaða upp gamla hesthúsið við Bölta. Aldrei hafa jafnmargir sjálfboðaliðar unnið í þjóðgarðinum og í sumar og það er gaman að fylgjast með þessu unga fólki og hvað það vinnur vel sín störf. Lesa meira
 
Árni og Jóna ásamt ásamt yngriflokk Sindra og Sigurði þjálfara

Landsbankinn færði Sindra 20 bolta að gjöf - 23.06.2004 Júní

Útibú Landsbankans á Höfn færði UMF Sindra í dag 20 bolta að gjöf. Boltarnir eru af þrem stærðum og eiga að passa fyrir alla bolta-leikmenn allt frá þeim minnstu upp í þá stærstu. Þetta er einn liður í starfi Landsbankans að styrkja KSÍ bæði í karla og kvennaboltanum í Landsbankadeildinni og þetta kemur í framhaldi af því, segir Jóna Ingólfsdóttir útibústjóri Landsbankans á Hornafirði. Þetta er meðal annars gert til að hvetja unglingana til að taka þátt í íþróttastarfi með Sindra og sýna um leið að við erum lifandi og fylgjumst með þessari miklu starfsemi og þátttöku liðsmanna Sindra, hér á Hornafirði. Lesa meira
 
Eyfi með gítarinn

Eyfi á Hótel Höfn annað kvöld - 23.06.2004 Júní

Eyjólfur Kristjánsson einn af okkar betri tónlistamönnum heldur tónleika á Hótel Höfn annað kvöld kl.22. Þar mun hann flytja öll lögin sín um leið og hann fylgir eftir útgáfu af nýjasta geisladiskinum sem hann gaf út sem ber nafnið Stjörnutúrinn. Eyjólfur sem má segja að sé sjóaður í bransanum hefur oft spilað fyrir okkur Hornfirðinga bæði á Þorrablótum og verið með tónleika hér. Fyrst spilaði hann hér 17. júní 1981 þegar hann kom hingað með Hljómsveitinni Hálft í hvoru. Eyjólfur vakti mikla lukku hér á Höfn þegar að hann ásamt Stefáni Hilmarssyni spiluðu á Menningardegi, einnig fóru þeir rúntinn og spiluðu á Leikskólunum og Elliheimilinu við mikinn fögnuð. Lesa meira
 
Smáhýsin fyrir neðan Nýja vatnstankinn

11 smáhýsi til viðbótar hafa verið tekin í notkun - 23.06.2004 Júní

Í gær urðu vegfarendur Hafnar varir við mikla húsflutninga um Víkurbraut, Hafnarbraut þegar að Guðni Karlsson bifreiðastjóri var að flytja smáhýsi þeirra Náttbólsmanna frá Óslandi þar sem starfsmenn Náttbóls hafa verið að setja þau saman síðustu mánuði. Flutningurinn heppnaðist í alla staði mjög vel og sóma smáhýsin sér vel á tjaldstæðinu fyrir neðan nýja vatnstankinn. Ellefu smáhýsum var bætti við þau sem fyrir voru og eru þau því alls sextán. Þetta er kærkomin viðbót við þá gistingu sem við getum nú boðið upp í Sveitarfélaginu Hornafirði. Þjónustumiðstöðin á tjaldstæðinu sér um að bóka í húsin að sögn Sigrúnar Kapitolu hjá Þjónustumiðstöðinni þá er þegar byrjað að bóka í húsin fyrir Humarhátíðina. Lesa meira
 
Þakið sett yfir bensíndælurnar

Nýi Essoskálinn kominn á fullt skrið - 23.06.2004 Júní

Nú er nýi Essoskálinn við Vesturbraut 2 kominn með fulla starfsemi og má segja að punkturinn yfir i-ið hafi verið uppsetning á þakinu yfir bensíndælurnar sem nú er komið upp. Nýi skálinn hefur upp á ýmislegt að bjóða svo sem dagvöru, þjónustu við bíleigendur og svo er hægt að setjast niður að fá sér kaffi og nýbakað brauð eða eitthvað af grillinu. Eins og við greindum frá í gær þá hefur Vínbúðin er flutt starfsemi sína í Essoskálann og opnaði þar í gær. Starfsmenn bæjarins eru að leggja loka hönd á hólinn sem er á bakvið Essostöðina og munum við fljótlega sjá hann hulinn grasi. Lesa meira
 
Jóna Eðvaldsdóttir landar við Óslandsbryggju

Kolmuninn búbót fyrir bræðsluna - 23.06.2004 Júní

Undanfarna daga hafa Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvaldsdóttir skip Skinneyjar Þinganess landað kolmunna hjá fiskimjölsverksmiðjunni Skeggey á Hornafirði. Búið er að bræða 4000 tonn af kolmunna og á Björn Traustason bræðslustjóri von á áframhaldandi löndunum á meðan kolmunnavertíðin er. Heimild er fyrir veiði á 720 þúsund tonnum af kolmunna á þessu ári. Skipin hafa verið að veiðum innan íslensku lögsögunnar og er um 10 tíma sigling til Hornafjarðar. Kolmunninn er unninn bæði í lýsi og mjöl og tekur bræðsla á þúsund tonnum tvo sólarhringa. Lesa meira
 
Sindraskvísur takast á við Hött Egilsstöðum

Sindraskvísur sigruðu Hött Egilsstöðum 4-0 - 22.06.2004 Júní

Sindri mætti Hetti frá Egilsstöðum í kvöld í meistaraflokki kvenna, og var staðan í hálfleik 1-0 fyrir Sindraskvísur, markið Skoraði Jóna Benný Kristjánsdóttir. Leikurinn var mjög jafn þar til liðið var á seinni hálfleik en þá áttu Sindraskvísurnar sterkari leik og það var á fjórum síðustu mínútunum að Jóna Benný skoraði 3 mörk til viðbótar og tryggði Sindraskvísum yfirgnæfandi sigur. Síðasti leikur þeirra fór 5-1 fyrir Sindra á móti Fjarðarbyggð. Þær trjóna nú á toppunum í sínum riðli og eru taplausar með 10 stig, önnur lið í riðlinum eru Höttur með 3 stig og Fjarðarbyggð með 1 stig en það eru aðeins þessi þrjú lið sem eru að keppa í þessum riðli. Jóna Benný er marka hæðst allar leikmanna í riðlinum með 8 mörk. Lesa meira
 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell)

Varðeldur og ratleikur í Skaftafelli - 22.06.2004 Júní

Um stærstu ferðahelgi sumarsins, fyrstu helgina í júlí ætla starfsmenn þjóðgarðsins í Skaftafelli að standa fyrir varðeldi laugardagskvöldið 3. júlí fyrir tjaldgesti. Sunnudaginn 4.júlí kl.11 bjóða svo starfsmennirnir krökkum á aldrinum 8–12 ára að taka þátt í skemmtilegum og fræðandi ratleik. Frá 15. júní–15. ágúst býður þjóðgarðurinn upp á daglegar göngur undir leiðsögn landvarða frá kl. 10:00 og 15:00 um áhugaverð svæði innan þjóðgarðsins, gestum að kostnaðarlausu. Lesa meira
 
Steinn Eiríksson eigandi Álfasteins með annað Vaðhornið í botni Fáskrúðsfjarðar í bakgrunn

Byrjað að saga legsteina í Flatey á Mýrum - 22.06.2004 Júní

Eins og framkom hér á vefnum í vetur keypti Álfasteinn á Borgarfirði sögunarverksmiðjuna í Flatey á Mýrum og ætlar að hefja þar starfsemi á næsta ári. Reyndar eru þeir Álfasteinsmenn á undan áætlun því þeir eru byrjaðir að saga legsteina þar. Við förum þangað og suður til að saga legsteina eftir því sem verkefni koma inn en það verður engin föst starfsemi þarna fyrr en næsta vor, þá stefnum við á að fara í þessa verksmiðju á fullu. segir Steinn Eiríksson í Álfasteini. Álfasteinn er því byrjaður að vinna íslenska legsteina í Flatey, mest er unnið stuðlaberg og basaltsteinar einnig höfum við prófað að vinna gabbró og rauða líparítið úr Hamarsfirði. Við höfum verið að grípa í að vinna í íslensku steinana og eru þeir alveg gullfallegir, basaltið og stuðlabergið er alveg feiknalega fallegt segir Steinn. Lesa meira
 
Geir Þorseinsson byggingarverktaki skoðar vöruúrvalið í nýju búðinni

Vínbúðin á Höfn hefur opnað í nýju húsnæði - 22.06.2004 Júní

Í morgun kl.11 opnaði Vínbúðin á Höfn í glæsilegu nýju húsnæði að Vesturbraut 1, nánar tiltekið í Nýju Esso þjónustumiðstöðinni. Mikið úrval er af víni á nýja staðnum og hefur vörutegundum verið fjölgað úr 170 í 200. Sú nýbreytni verður að Vínbúðin mun vera með kynningar á léttvínum svo sem víni sem hentar með grillmatnum. Í vínbúðinni er búið að setja upp aðstöðu fyrir viðskiptavinina og geta þeir pakkað inn víni í gjafavöruumbúðir sé það ætlað til gjafa. Í búðinni velur viðskiptavinurinn sjálfur vínið úr hillunni eins og gert var á gamla staðnum. Útibússtjóri Vínbúðarinnar á Höfn er Elín Þórdís Heiðarsdóttir Lesa meira
 
Brúin yfir Hornafjararfljót

Ný brú yfir Hornafjarðarfljót næsta stórframkvæmd - 22.06.2004 Júní

Það fer ekki á milli mála þegar ferðalangar keyra yfir gömlu brúnna yfir Hornafjarðarfljót, að hún er farin að þreytast. Ný brú yfir Hornafjarðarfljót er komin inn á samgönguáætlun og næsta skref er að leggja fram skýrslu um umhverfismat um fleiri en eina tillögu en nokkur ferill er áður en það getur hafist sagði Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra. Það verður næsta stórframkvæmd í samgöngumálum í Austur-Skaftafellssýslu. Brúin yfir Hornafjarðarfljót var byggð 1961 og er 254 metra löng strengjasteypubrú. Nýtt brúarstæði mun verða utar og styttir það hringveginn um 10-11 km. Fyrstu fjárveitingar til framkvæmdanna eru á þessa árs fjárhagsáætlun, sem er að ljúka og verður hún tekin til endurskoðunar í haust. Lesa meira
 
Einn af þeim stóru úr Laxá í Nesjum @Laxanes

Miklar væntingar til Laxár í Nesjum - 22.06.2004 Júní

Laxá í Nesjum opnar formlega 10. júlí næstkomandi með því að bæjarstjóri Albert Eymundsson og forseti bæjarstjórnar Halldóra B. Jónsdóttir sýna færni sína á stöng og reyna að ná þeim stóra. Búið er að bóka svo til öll holl í ánni og að sögn Guðjóns Jónssonar hjá Veiðifélaginu Laxanes ehf sem rekur ánna þá eru aðeins 4-5 dagar óseldir. Í fyrra gaf áin 88 laxa og 140 árið áður. Mjög gott hlutfall var af stórlaxi og var stærsti laxinn sem veiddist í fyrra 18 pund. Miklar væntingar eru gerðar til veiðinnar í ár enda var sleppt um 18-19 þúsund laxaseiðum á síðasta ári. Reiknað með að allt að 200 laxar geti veiðst þetta sumar sem setur ána í fyrst flokk laxveiðiáa á Íslandi. Það er sífellt aukinn áhugi erlendra veiðimann á ánni og eru þeir nú um 15% þeirra sem hafa bókað ána í sumar. Lesa meira
 
Í Þröng í Suðursveit @Rannveig Einarsdóttir

Óvissuferð Ferðafélagsins á Jónsmessu - 21.06.2004 Júní

Nú þegar jafndægur nálgast fer Ferðafélag A-Skaft í sína árlegu Jónsmessugöngu en eins og undanfarin ár þá er þetta óvissuferð. Þeir sem hafa áhuga á að fara í þessa ferð þurfa aðeins að mæta við Þjónustumiðstöðina, miðvikudagskvöldið 23. júní kl.20.00 og hafa með sér nesti, góða skó og klæða sig eftir veðri. Farið verður á einkabílum á óvissustaðinn og þar verður tekin létt ganga sem hentar öllum ungum sem öldnum. Að sögn Sigurjóns Einarssonar þá verður gengið um einn og hálfan tíma, ekki langt frá Höfn, það eina sem fékkst upp úr honum var að þetta er innan við 50 kílómetra frá Höfn. Lesa meira
 
Móttaka ráðherranna verður um borð í Akurey SF

Norrænir dómsmálaráðherrar á Höfn - 21.06.2004 Júní

Von er á dómsmálaráðherrum norðurlandana ásamt föruneyti til Hafnar í kvöld og er erindi þeirra að funda hér næstu daga ásamt því að skoða sig um. Ísland fer nú með formennsku í norrænu ráðherranefndinni og því er þessi sumarfundur haldinn hér á Höfn. Gestgjafinn Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tekur á móti ráðherrunum um borð í Akurey SF og þaðan munu þeir halda í Pakkhúsið þar sem þeir munu snæða hátíðarkvöldverð, þar sem Hótel Höfn verður með Hornfirska afurði í fyrirrúmi. Boðið verður boðið upp á kokteil, með smáréttum sem samanstanda af síld, loðnuhrognum og rækjutörtumr ásamt hörpuskel. Í forrétt verður hreindýra garpaccio og aðalréttur að sjálfsögðu Hornfirskur humar með bankabiggi, í eftirrétt verður síðan súkkulaði Coulant með eldsteiktum ávöxtum. Lesa meira
 
Frá lúðrasveitarmótinu í Eyjum (@Sigurgeir Jónasson)

Marseruðu og spiluðu fram undir morgun í Eyjum - 21.06.2004 Júní

Lúðrasveit Hornafjarðar tók um helgina þátt í Landsmóti lúðrasveita sem að þessu sinni var haldið í Vestmannaeyjum. Þetta er 18 landsmótið sem haldið er á 50 árum og var 50 ára afmæli Samtaka Íslenskra lúðrasveita minnst í Vestmannaeyjum. Lúðrasveitin hélt til Vestmannaeyja með Herjólfi á föstudag kl. 12:00, og byrjuðu að spila ásamt Lúðrasveit Reykjavíkur niður í miðbæ stuttu eftir að í land var komið. Það mátti heyra lúðrasveitarhljóm vítt og breytt um eyjarnar þar sem hinar ýmsu lúðrasveitir tóku lögin. Alls voru það 15 hljóðfæraleikarar frá Höfn sem héldu til eyja og voru það alls 250 hljóðfæraleikarar sem tóku þátt í mótinu. Tvær erlendar gestalúðraveitir frá Noregi og Finnlandi tóku einnig þátt og héldu tónleika á föstudagskvöldinu. Á laugardagskvöldinu voru aðal tónleikar mótsins þar sem allar sveitirnar spiluðu stutt prógramm sem endaði síðan með því að allar sveitirnar spiluðu saman þrjú lög. Lesa meira
 
Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra skála með sínu fólki. Fagnað verklokum og opnun göngubrúar við Eskifell. Guðni Artúrsson brúarsmiður fyrir miðri mynd.

Lengsta göngubrú landsins formlega opnuð - 21.06.2004 Júní

Lokið er við smíði lengstu göngubrúar landsins, hún er yfir Jökulsá í Lóni og var formlega opnuð af samgöngumálaráðherra Sturlu Böðvarssyni 16. júní sl. Brúin sem er 95 metra löng og tveggja metra breið er við Eskifell. Brúarvinnuflokkur frá Reyðarfirði sá um verkið. Með tilkomu brúarinnar opnast gönguleið úr Stafafellsfjöllum inn á Lónsöræfi og meiri möguleikum á gönguferðum um þetta svæði. Tilvalið er t.d. að ganga frá Stafafelli inn Stafafellsfjöll yfir göngubrúna og yfir í Eskifell þar sem er tjaldstæði og næsta dag væri svo gengið inn í Kollumúla. Gunnlaugur Ólafsson í Stafafelli segir að unnið verði að stígagerð sitthvoru megin brúarinnar á næstu vikum og kemur 15 manna hópur frá Sjálfboðaliðum um náttúruvernd og aðstoðar við verkið í lok mánaðarins. Brúin er byggð í samræmi við stefnumörkun landeigenda í útivistar- og ferðamálum frá árinu 1997. Formleg vígsla á meginleið úr byggð inn í Víðidal (rúmir 30 km) verður um Verslunarmannahelgina. Í því tilefni verður skipulögð útivistar- og skemmtidagskrá sem gengur undir heitinu Lesa meira
 
Grétar Már Þorkelsson umsjónarmaður Búnaðarsambands

Fluttur með Búnaðarsambandið í Nýheima - 20.06.2004 Fréttir fruma

Umsjónarmaður búnaðarsambands A-Skaft, Grétar Már Þorkelsson hefur flutt sig um set og er kominn með afgreiðslu fyrir bændur og búalið í Nýheimum, nánar tiltekið í aðstöðu Frumkvöðlaseturs Austurlands. Búnaðarsambandið hefur verið með aðstöðu sína á Rauðabergi 2 á Mýrum, en af hverju að flytja hana úr sveitinni út á Höfn? “Þetta var vilji bændanna, þeim finnst að þeir eigi auðveldara með að nálgast mig hér því þeir eigi alltaf erindi á Höfn og finnst gott að geta sameinað ferðirnar á einn stað” segir Grétar. Ég fékk góða aðstöðu hérna og er afskaplega ánægður með þetta allt. Hvað búskapinn í sýslunni varðar segir Grétar að hann gangi mjög vel, sauðburður búinn og bændur almennt farnir að heyja. Nokkuð er síðan bændur í Nesjum byrjuðu að slá og þar er fyrra slætti víða að ljúka. Heyskapartíð hefur verið sérlega góð og grasspretta mikil. Lesa meira
 
Frá kvennahlaupinu 2004

165 konur tóku þátt í kvennahlaupinu - 19.06.2004 Júní

Hlaupið á Höfn heppnaðist mjög vel og voru það um 165 konur tóku þátt í hlaupinu og líklega fleiri þar sem það voru ekki allir sem skráðu sig en tóku samt þátt í hlaupinu sagði Svafa Mjöll Jónasar eftir hlaupið í morgun. Hún vildi fyrir hönd aðstandenda hlaupsins koma fram þakklæti til þeirra sem mættu og fyrir frábæra þátttöku. Veðrið á Höfn var með besta móti, ekki dropi úr lofti og voru hlauparar á öllum aldri. Allir fengu bol og verðlaunapening og Fjóla Rafnkelsdóttir fékk blómvönd fyrir þátttökuna en hún var sú elsta í hópnum. Um 50 konur sem voru staddar á ættarmóti í nágrenni Hafnar sóttu 50 boli og ætluðu þær að hlaupa kvennahlaupið þar. Lesa meira
 
Haldið af stað í gönguna

Skemmtileg þjóðhátíðarganga í Nesjum - 19.06.2004 Júní

17. júní hátíðarhöldin í Nesjum voru haldin með sama sniði og undanfarin 17 ár þ.e. farið í skemmtilega ferð um nágrennið. Að þessu sinni var haldið í gripavagni að Ketilaugafjalli og gengið upp skarðið þar. Um 50 manns mættu þetta árið en hópurinn sem fer þessa ferð á Þjóðhátíðardaginn fer stækkandi og sífellt fleiri Hafnarbúar eru farnir að nýta sér þennan valkost á Þjóðhátíðardaginn enda stutt frá Höfn. Margir notuðu tækifærið og týndu flotta steina í ferðinni en af þeim er nóg á þessum slóðum. Hreinn Eiríksson kenndur við Miðsker stjórnaði ferðinni sem tók 2,5 tíma með miklum sóma. Lesa meira
 
Þórir SF á útleið í dag

Lóðsinn hnubbaði aðeins í Þóri SF - 18.06.2004 Júní

Hornafjarðarbátar hafa alltaf, þegar veður hefur leyft, boðið upp á siglingu út fyrir Ós. Smá breyting varð á þessu á sjómannadaginn síðasta en þá var siglingu frestað til dagsins í dag. Upp úr kl. 13 sigldu sex bátar úr höfninni, að lóðsinum meðtöldum sem til öryggis fylgdi bátunum. Siglt var út á miðgrynnsli út undir Hvanneyjarsker þar sem snúið var til baka. Á leiðinni í land, tók einn bátanna, Þórir SF niðri við garðinn utan við bræðsluna. Sem betur fer reyndist þetta ekki neitt strand og þegar Lóðsinn hafði aðeins hnubbað í Þóri hélt hann áfram inn að bryggju og skilaði sínum farþegum í land. Lesa meira
 
Svafa Mjöll Jónasar í Sporthöllinni

Búist við mikilli þátttöku í kvennahlaupið á Höfn - 18.06.2004 Júní

Nú styttist í Kvennahlaupið sem hefst kl.11 á morgun laugardag og verður lagt af stað frá Sporthöllinni. Þetta er 15 árið sem Kvennahlaup ÍSÍ fer fram og eru Sjóvá-Almennar aðalstyrktaraðili hlaupsins. Góð þátttaka hefur verið í hlaupinu hér á Hornafirði og segir Svafa Mjöll Jónasar hjá Sporthöllinni að þegar hafi margir skráð sig og ekki endilega heimamenn því fólk sem er hér á ferðalagi ætlar að taka þátt í hlaupinu. Þáttakenndur eru á öllum aldri og hægt er að velja um þrjár hlaupaleiðir, 2 km, 5 km og 7 km leið. Hlaupaleiðirnar verða merktar og verðu hlaupið innanbæjar en 7 km. leiðin verður rétt út fyrir bæinn. Lesa meira
 
Frá hátíðarhöldunum á Hóteltúni 2004

Vel heppnuð hátíðarhöld - 18.06.2004 Júní

Dagskrá þjóhátíðardagsins 17. júní á Höfn fór fram á Hóteltúni í blíðskaparveðri eftir að hafa gengið skrúðgöngu frá Vesturbrautarplaninu undir forustu Lúðrasveitar Hornafjarðar. Mikið var um að vera svo sem ávarp fjallkonunnar sem að þessu sinni var Guðrún Ása Jóhannsdóttir, farið í leiki á túninu, börnin fengu andlitsmálun og var þar íslenski fáninn vinsælastur, boðið var upp á grillaðar pylsur, og að sjálfsögðu voru hestamenn mættir á staðinn og buðu á hestbak svo eitthvað sé nefnt. Lesa meira
 
5. og 6. flokkur kvenna

Vöruvalsmót í Eyjum - 18.06.2004 Júní

Síðustu helgi héldu um 90 manns frá Hornafirði út fyrir landssteinana eða til Vestmannaeyja. Þarna á ferð voru stelpur úr 5. og 6. Flokki Sindra sem og aðstandendur þeirra og þjálfarar, stelpurnar sjálfar voru 36 svo það er greinilegt að stuðningshópurinn hefur verið breiður. Það sem dreif stelpurnar alla leið til Eyja var svokallað Vöruvalsmót sem er mót fyrir stelpur í 5. og 6. Flokki. Sindrastelpurnar voru til fyrirmyndar og stóðu þær sig allar með stakri prýði, komu þær heim með bikara og verðlaunapeninga fyrir góðan árangur og mikla prúðmennsku sem ekki er síður mikill heiður. Lesa meira
 
Árni Johnsen á Humarhátíð 2004

Árni Johnsen skemmtir á Humarhátíð - 17.06.2004 Humarhátíð Fréttir

Bryggjusöngur mun hljóma þetta árið á Humarhátíð því vísnasöngvarinn og fyrrverandi þingmaðurinn Árni Johnsen mun skemmta gestum hátíðarinnar á föstudagskvöldið. Valin lög munu hljóma úr 100 laga prógrammi sem Árni hefur sett saman. Árni segir að þetta sé mjög góð upphitun fyrir þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum og er reynsla hans af Hornfirðingum sé sú að þeir erum mjög fljótir að taka með sér lagið. Árni sagði í samtali við humar.is frá eftirminnilegri ferð hingað austur þegar að hann var á ferð með samgöngunefnd þegar hún heimsóttir Hornafjörð og Djúpavog. Kom nefndin við á Hótel Vatnajökli um það leiti sem opna átti hótelið sem var eftir tvo daga og ætlaði nefndin að hitta Skarphéðin Larsen hótelhaldara en fékk þær fréttir að hann hafi verið fluttur með sjúkraflugvél til Reykjavíkur og því ekki getað tekið á móti nefndinni. Lesa meira
 
Elvar Bragi, Haukur Þorvalds og Sólveig

Taka þátt í unglingamenningarmóti Ung i Norden - 17.06.2004 Júní

Elvar Bragi Kristjónsson og Sólveig Sigurðardóttir sem luku námi í 10. bekk Heppuskóla halda til Danmerkur í næstu viku til að taka þátt í unglingamenningarmótinu Ung í Norden sem stendur þar yfir í eina viku. Þau taka þátt í mótinu á vegum Þrykkjunnar en alls taka 20 íslenskir krakkar á aldrinum 14-18 ára þátt í mótinu. Að sögn Hauks Þorvaldssonar æskulýðsfulltrúa þá er þetta er samnorrænt verkefni þar sem hittast unglingar frá Norðurlöndunum og vinna saman ýmis verkefni svo sem tónlist, leiklist, myndgerð og dansi. Mótið sem fer fram á Norður Jótlandi, nánar tiltekið Herrup hefst þann 28. júní og lýkur 4. júlí. Þau Elvar og Sólveig hafa starfað mikið að tónlist- og leiklistarmálum hér á Hornafirði þrátt fyrir ungan aldur. Lesa meira
 
Hreint ótrúlegt útsýni í svifvængjaflugi

Námskeið í Svifvængjaflugi á Höfn - 16.06.2004 Júní

Fyrirhugað er að halda námskeið í Paragliding eða svifvængjaflugi eins og það heitir á góðri íslensku. Námskeiðið verður haldið í nágrenni Hafnar. Það eru bræðurnir Jón Þorbjörn og Gísli karl Ágústssynir sem standa fyrir þessu námskeiði í samvinnu við Svifdrekafélag Reykjavíkur sem sendir hingað mjög reyndan kennara. Á námskeiðinu er farið í helstu atriði sem varða svifvængjaflug. Þátttakendum er veitt innsýn í flugeðlisfræði, auk þess sem uppbyggingu og stjórnun eru gerð góð skil en ekki síst skemmtilegar verklegar æfingar. Hægt er að fljúga á svifvængi næstum því hvar sem er í Sveitarfélaginu og því meira sem uppstreymið er því betra. Jón Þorbjörn segir að það reyndir svifvængjaflugmenn fari upp í 1000 metra hæð og sé það lítið mál þar sem uppstreymi er gott. Lesa meira
 
Sigling á Sjómannadaginn 2000  (úr myndasafni)

Boðið upp á siglingu út fyrir Ós á föstudag - 16.06.2004 Júní

Skipstjórar á nokkrum Hornfirskum bátum í samráði við Sjómannadagsráð hafa ákveðið að bjóða upp á siglingu út fyrir Ós á föstudag kl.13:00 þar sem siglingin á Sjómannadag féll niður vegna manneklu. Þeir bátar sem munu sigla eru Skinney, Sigurður Ólafsson, Erlingur, Hvanney og Lóðsinn. Það spáir vel og því óþarfi að taka með sjóveikispillurnar. Þeir sem hafa áhuga mæta niður á bryggju kl.13 föstudaginn 18. júní. Búið er að skipa sjómannadagsráð fyrir næsta ár og hefur skipulaginu verið breytt á þann hátt að nú eru það áhafnir sem skipa sjómannadagsráðið og að þessu sinni verður það áhöfnin á Þóri sem tekur að sér hlutverkið. Með því er verið að færa ábyrgðina yfir á bátaflotann sem eflaust mun búa til samkeppni þeirra á milli hvaða sjómannadagur er með glæsilegasta yfirbragði. Lesa meira
 
Samgöngumálaráðherra Sturla Böðvarsson  þrýstir á happinn

Byrjað að sprengja göngin í gegnum Almannaskarð - 16.06.2004 Júní

Í dag var formlega byrjað að sprengja fyrir göngum í gegn um Almannaskarð og var það Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra sem sprengdi fyrstu hleðsluna. “Þessi kafli sem hér er verið að byrja á er mikilvægur þáttur í endurbyggingu hringvegarins. Vegurinn um Almannaskarð er mjög erfiður og brött brekka sem gert var ráð fyrir að endurbyggja og leggja þar nýjan veg og þegar það lá fyrir að það yrði mjög dýr og umfangsmikil aðgerð kom vegagerðin með þá tillögu að grafa frekar göng, og það er það sem hafið er hér í dag. Göng í gegn um Almannaskarð munu stórauka umferðaröryggi á hringveginum og það er það sem skiptir máli” sagði Sturla Böðvarsson. Lesa meira
 
Skeiðarárbrú (úr myndasafni mars 2004)

30 ára afmæli Skeiðarárbrúar í júlí - 16.06.2004 Júní

Þann 14. júlí nk. eru liðin 30 ár frá opnun Skeiðarárbrúar. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli segir að þessa merka áfanga í íslenskum samgöngumálum verði minnst á verðugan hátt og er undirbúningur hátíðarinnar hafinn. Göngubrú yfir Morsá er alveg að verða tilbúin, aðeins smádútl eftir við hana segir Ragnar og hún verður vígð á brúarafmælinu. Hópur sjálfboðaliða vinnur við göngustíga og pallasmíði og byrjað er á að endurgera gamalt hesthús sem er ofan við Bölta. Hesthúsið er eitt af þessum gömlu skaftfellsku hesthúsum og þegar það verður komið í sitt gamla form, sem vonandi tekst fyrir 14. júlí, verður það til sýnis. Lesa meira
 
Það verður gaman á þjóðhátíð

17. júní hátíðarhöldin á Höfn og í Nesjum - 15.06.2004 Júní

Mikið verður um að vera á þjóðhátíðardaginn 17.júní bæði á Höfn og í Nesjum. Hátíðarhöldin á Höfn eru í umsjón 6.flokks Knattspyrnudeildar Sindra. Hátíðarhöldin á Höfn hefjast kl.11 með Messu í Hafnarkirkju og um leið víðavangshlaupi frá Íþróttahúsi Heppuskóla. Skrúðgangan fer síðan frá Vesturbrautarplaninu kl.13:30 undir stjórn Lúðrasveitar Hornafjarðar og heldur upp á Hóteltún þar sem hátíðarhöldin byrja kl.14. Það verður margt skemmtilegt um að vera þar fyrir unga sem aldna og að lokinni dagskrá verður boðið upp á grillaðar pylsur. Sindrabíó sýnir Pétur Pan kl. 17 og er myndin með íslensku tali. Fjölskyldudansleikurinn sem er ómissandi þáttur í hátíðarhöldnunum verður haldin á planinu við Lönguhóla. Hátíðarhöldin í Nesjum hefjast kl.13 þar sem farið verður í vagni upp að Ketillaugarfjalli, þar verður gengið um Krossbæjarskarð, komið niður við Stúf, grillað og farið í leiki. Þeir sem ekki treysta sér í gönguna er velkomið að mæta við Stúf og þiggja veitingar. Lesa meira
 
Krosseyjarbakkinn í Hornafjarðarhöfn

Nýtt þil á Krosseyjarbakka í Hornafjarðarhöfn - 15.06.2004 Júní

Búið er að skrifa upp á verksamning við verktakafyrirtækið Ísar ehf um gerð þils við Krosseyjarbakka í Hornafjarðarhöfn og á verkinu að vera lokið 15. september. Fimm aðilar buðu í verkið og var Ísar með lægsta tilboðið á 30.952 mkr. 64 % af kostnaðaráætlun. Væntanlega verður byrjað á verkinu í næstu viku. Hafnarstjórn hefur samþykkt ákveðna tillögu um grynnslin utan við Hornafjarðarós og er hún til endanlegrar umfjöllunar hjá Siglingarstofnun til samþykktar og er allur undirbúningur að komast á logastig segir Albert Eymundsson bæjarstjóri. Gera á rennu gegnum þessi svokölluðu grynnsli og dýpka þar rennu fyrst og fremst fyrir uppsjávarveiðiskipin þ.e. loðnu og síldveiðiskip. Ekki er endanlega búið að ákveða hve djúpt verður grafið en allavega átta metra segir Albert. Við vonumst eftir að takist að fá sanddæluskip í verkið sem fyrst vegna þess að nú er besti tíminn til að vinna þarna á grynnslunum. Gerðar hafa verið öldumælingar á þessu svæði í mörg ár og því vitað nákvæmlega hvenær hagstæðasti tíminn er. Lesa meira
 
Séð yfir hluta af nýja golfvellinum

Verður 2,5 km eftir stækkun golfvallarins - 15.06.2004 Júní

Vinna er hafin við golfvöllinn á Silfurnesi á Höfn en byrjað var á að stækka völlinn í fyrra. Núna er verið að fullmóta flatirnar, grínin eins og það heitir á golfmáli, og gera þau tilbúin undir sáningu og búa til teiga. Guðný Helgadóttir formaður golfklúbbsins segir að fullgera eigi völlinn í sumar en hann verði ekki formlega opnaður fyrr en 2006 því grasrótin verður að vera orðin þétt og sterk en auðvitað er draumurinn að geta aðeins byrjað næsta haust þ.e.2005. Völlurinn er núna 1920 m. hringurinn en eftir stækkun verður hann 2.5 km og áfram 9 holur eins og hann er. Hönnuður að golfvellinum er Edvin Ragnarsson og fylgist hann með grín-framkvæmdunum. Mikið er um að vera á golfvellinum á Silfurnesi í sumar og næsta mót verður Hafnarapóteks golfmótið 17.júní. Humarhátíðar-golfmótið verður 2-4 júlí og Hótel Hafnarmótið, sem er stærsta golfmót sumarsins, verður 21.ágúst. Lesa meira
 
Stofnun hjólabretta og línuskautafélags

Stofnun hjólabretta og línuskautafélags - 14.06.2004 Fréttir

Æskuliðs og tómstundarráð kannar nú áhuga krakka á Hornafirði á jaðaríþróttum og að þessu sinni er það hjólabretti og línuskautar. Fyrirhugað er að stofna klúbb og í framhaldi af því verður fenginn sérfræðingur í slíkum jaðaríþróttamálum sem heimsækir klúbbinn til skrafs og ráðagerðar þar sem m.a. verða skoðuð þau svæði sem koma til greina að setja upp brautir fyrir þessar íþróttir. Borist hefur erindi frá Rauðakrossdeildinni á Höfn þar sem segir að komið hafi til tals að deildin gefi brettapalla fyrir þá krakka sem eru á hjólabrettum hér. Haukur Þorvaldsson æskulýðsfulltrúi segir að það sé vaxandi áhugi á jaðaríþróttum hér og nefndi hann sem dæmi stofnun Mótorkross klúbbsins, Litboltafélagið og þá sem sigla um fjörðinn á kajak. Lesa meira
 
Sjóflugvélin á Hornafjarðarflugvelli

Sjóflugvélin hélt áleiðis til Bandaríkjanna - 14.06.2004 Júní

Hornafjarðarflugvöllur er einn af alþjóðlegum flugvöllum og þykir ákjósanlegur fyrir ferjuflugvélar að millilenda og taka eldsneisti. Það færist í vöxt að sömu flugmennirnir kjósa að millilenda hér og segja þeir það vera vegna staðsetningar flugvallarins og þess bónus sem þeir fá vegna þjónustulipurð starfsmanna flugvallarins. Í morgun hélt héðan sjóflugvél sem var frá Wick í norður Skotlandi áleiðis til Bandaríkjanna “Það er mikið og gott samstarf milli Hornafjarðar og Skotlands á þessu sviði Ásgeir Núpan Ágústsson hjá flugturninum á Höfn. Lesa meira
 
Björgunarfélagið með parinu sem sótt var á Vatnajökul (Mynd SIgfús Már)

Ætlaði að sýna unnustunni Vatnajökul - 14.06.2004 Björgunarfélag : Fréttir

Útkall gulur eins og það heitir á Björgunarsveitarmáli var kl. 13:12 í gær frá 112 um að það vantaði aðstoð á Vatnajökull. Hringt hafði verið úr gervihnattasíma í Jöklasel og beðið um aðstoð á ákveðin GPS punkt. Farið var á tveimur sleðum og þremur jeppum og stefnan tekinn á upp gefin punkt en þar var ekkert að finna svo sveitir á Austurlandi sem voru komnar i viðbragsstöðu voru beðnar að halda á stað. Fólkið hafði samband að nýju í Jöklasel og gaf upp staðsetninguna aftur og þá kom í ljós að vegna misskilnings hafði munað 40 km. Ferðalangarnir sem voru par, Finni sem ætlaði að sýna unnustu sinni sem var frá Póllandi Vatnajökul fundust um kl 18:30 og var fólkið blaut og hrakið og brennt í andliti eftir sterka birtu á jöklinum. Margir ferðalangar vanmeta aðstæður á jöklinum og telja að ekki sé hætta á sólbruna ef ekki er sól sem er stór misskilningur. Lesa meira
 
Ásgrímur Halldórsson SF-250 að landa kolmuna

Landaði 1000 tonnum af kolmuna - 14.06.2004 Júní

Ásgrímur Halldórsson SF landaði um 1000 tonnum af kolmunna á Hornafirði í gær og fer aflinn til bræðslu í fiskimjölsverksmiðju Skeggeyjar ehf. Að sögn starfsmanns bræðslunnar er þetta er fyrsti kolmunnafarmurinn sem landað er á Hornafirði til vinnslu. Um þrjá sólahringa tekur að fullvinna þennan farm. Ásgrím Halldórsson SF er gerður út á kolmunna yfir sumarmánuðina af Síldarvinnslunni sem einnig sér um rekstur fiskmjölsverksmiðju Skeggeyjar. Jóna Eðvaldssóttir SF, skip Skinneyjar Þinganess er væntanleg með kolmunnafarm til Hafnar, en er ekki vitað á þessari stundu hvenær hún landar. Lesa meira
 
Leikmenn HB ánægðir með Hornfirska sjóhatta (@ BS)

Fjörug Færeyjaferð - 13.06.2004 Júní

Á fimmtudaginn s.l. komu drengirnir í 4. flokk karla hjá Sindra siglandi inn Seyðisfjörð með Norrænu eftir að hafa dvalið í vikutíma hjá frændum okkar Færeyingum. Alls fóru 18 drengir í þessa æfinga- og keppnisferð og var dvalið hjá Havnar Bóltfelag í Þórshöfn en það félag heldur upp á 100 ára afmælið sitt á þessu ári. Ferðin gekk í allastaði vel og var rífandi stemning í hópnum. Allar aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru Hornfirðingunum knáu svolítið framandi því eingöngu er spilað á gervigrasi en aðstæður í Færeyjum eru hreint til fyrirmyndar enda sást það vel á getu hinna Færeysku víkinga sem voru úthaldsgóðir og fótafimir með afbrigðum. Margt var sér til gamans gert þessa viku og ekki eingöngu leikinn fótbolti. Sundhöll þeirra í Þórshöfn var heimsótt, farið var í keilu, bíó og auðvitað voru pizzastaðir eyjanna kannaðir í þaula. Það voru þreyttir en sælir ferðalangar sem komu til Hornafjarðar á fimmtudaginn og ekki er nokkur vafi á að þessi ferð á eftir að lifa í minningunni um ókomin ár. Lesa meira
 
Sveinbjörn Pálsson og Andrés Einarsson eru meðal annarra smiðir hita-ofnanna

Nýsmíði á hita-garðofnum hjá Vélsmiðju Hornafjarðar - 12.06.2004 Júní

Hverjum dreymir ekki um að sitja fyrir framan hitaofn út í garði þegar farið er að kólna á kvöldin. Véladeild Vélsmiðju Hornafjarðar hefur m.a. staðið í nýsmíði og hefur nú um skeið framleitt garð-hitaofna sem smíðaðir eru úr gömlum bobbingum sem sóttir hafa verið út á fjörur og endurnýttir með þessu móti. Ofnarnir eru ýmist smíðaðir úr einum eða tveimur bobbingum með fótum og stórum reikháf, algengasta stærðin er um 3 metrar á hæð. Hægt er að láta sérsmíða hitaofna eftir kröfum hvers og eins. Ofnar sem þessir eru orðnir mjög vinsælir í sumarbústöðum og hita mjög vel í kringum sig enda getur bobbingurinn orðið 300 gráða heitur. Lesa meira
 
Krakkarnir á sundæfingu

Mikil aðsókn á sundæfingar og sundnámskeið - 11.06.2004 Júní

Yfir 50 krakkar eru að æfa sund hjá Sunddeild Sindra og enn hafa ekki allir komist að sem vilja. Nú er verið að fjölga æfingum til að allir geta æft sund. Deildin er með tvö full námskeið og biðlista fyrir 5-6 ára börn. Í dag lauk fyrsta námskeiðinu fyrir 5-6 ára börnin og byrjar nýtt á mánudag. Eins og allir vita þá er sund mjög góð íþrótt fyrir fólk á öllum aldri og best og ekki síst fyrir þau yngstu. Sunddeildin hefur nú náð í þrautreyndan þjálfara, Sigrúnu Hallgrímsdóttur sem vissulega dregur að og líklegt að foreldrar átti sig betur á mikilvægi þess að börn hreyfi sig. Lesa meira
 
Hólmsá, varnargarðarnir koma austan við ánna

Vegasamband komið á Suðurfjörur - 11.06.2004 Júní

Nú er búið er að ýta upp varnargörðum austan Hólmsá og liggur akvegur eftir þeim út á fjörur. “Eftir er að slétta og laga veginn en hægt að fara hann á flestum bílum” segir Þrúðmar Sigurðsson. Samkomulag varð milli Landgræðslunnar og Sveitarfélags Hornafjarðar um gerð varnargarða og vegar niður með Hólmsá að austan og út á Suðurfjörur og er áætlaður kostnaður við verkið um 6 milljón kr. Varnargarðarnir eru tveir, efri garðurinn frá Mjöðm út á Hlöðholt er 650 m langur, meðalhæð 1,60 m og er hann grjótvarinn. Frá Hlöðholti út í Skinney er 600 m langur garður sem ýtt var upp og verður sáð í hann og látið reyna á hvort það dugir ekki. Frá Skinney út á fjörur þarf ekki garð þar sem Hólmsá hefur grafið sig þar vel niður og er orðið 6-7 m dýpi við útfallið. Landgræðslan hefur séð um framkvæmd verksins Lesa meira
 
Frá skólastjórnendafundinum (@ Þórgunnur Torfadóttir)

Vorfundur skólastjórnenda á Austurlandi - 10.06.2004 Júní

Skólastjórnendur á Austurlandi eru með árlegan vorfund sinn hér á Hornafirði í dag. Fundurinn er í Hafnarskóla og er aðalefni hans samstarf grunn- og framhaldsskóla á Austurlandi og því sitja einnig fulltrúar frá framhaldsskólunum fundinn. Samstarf þessara skólastiga er sífellt að aukast og hafa nemendur í grunnskólum verið að taka áfanga í framhaldsskóla samhliða grunnskólanáminu. Guðmundur Ingi Sigbjörnsson verður með kynningu á Olweusarkerfinu gegn einelti en Hafnar- og Heppuskóli hafa unnið samkvæmt því í tvö ár. Lesa meira
 
Frá Breiðamerkursandi (mynd ebe)

Ríkið hafnar úrskurði óbyggðanefndar og stefnir í áframhaldandi stríð við landeigendur - 10.06.2004 Júní

Enn á ný verða landeigendur í Öræfum að berjast fyrir eignarrétti á landi sínu gegn ríkinu sem sættir sig ekki við úrskurð óbyggðarnefndar um eignarrétt landeigenda yfir Skeiðarársandi og Breiðamerkursandi. Ríkið setti óbyggðanefnd á fót en sættir sig svo ekki við úrskurð hennar segir Örn Bergsson á Hofi. Það tekur um tvö ár að fá niðurstöður í þessu máli í hæstarétti, fyrst fer það fyrir héraðsdóm og síðan fyrir hæstarétt. Við erum búin að ráða okkur lögmenn til að fara með þetta mál fyrir okkur landeigendur segir Örn, og hvað varðar stækkun Skaftafellsþjóðgarðs eins og málin standa núna þá munum við ekki taka neinn þátt í umræðum um hann né samningum. Við tölum ekkert við þessa menn á meðan þeir fara með þessu ofbeldi gegn okkur og stefna okkur fyrir dómstóla til að hafa af okkur land sem við eigum. Lesa meira
 
Vinnuskólinn við þökulagningu á tjaldstæðinu

Tjaldstæðið getur nú hýst um 800 manns - 10.06.2004 Júní

Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á stöllun í kringum nýja vatnstankinn sem felur í sér að rífa upp þökurnar sem fyrir voru, slétta og búa til stalla og setja síðan þökurnar á aftur. Við þessar breytingar getum við bætt við 70 tjöldum og nýtt það pláss sem er fyrir neðan tankinn” segir Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur. Með þessari aukningu geta nú auðveldlega 800 manns dvalið á tjaldstæðinu á Höfn. Að sögn Huga Einarssonar hjá þjónustumiðstöðinni þá hefur það verið aðdáunarvert að fylgjast með dugnaði krakkana í vinnuskólanum sem sér um að taka upp þökurnar og leggja á ný. Nýja svæðið verður líklegast tilbúið á næstu vikum ef veður helst óbreytt en miðað við slíkar framkvæmdir þá er rigningin vel þegin segir Helgi Már. Lesa meira
 
Vinnuskólinn að störfum við Ránarslóð

Mikil aðsókn í unglingavinnuna - 10.06.2004 Júní

Bæjarvinna hjá unglingunum á Hornafirði í 8-9 bekk byrjaði á mánudaginn sl. og fyrsta verkefnið var tiltekt eftir sjómannadags hátíðarhöldin og svo verður haldið áfram við að snyrta og fegra bæinn okkar segir Guðrún Ása verkstjóri og umsjónarmaður vinnuskólans. Mikil aðsókn er í unglingavinnuna og eru komnir á skrá yfir hundrað unglingar sem eru mun fleiri unglingar en gert var ráð fyrir. Bæjarráð var var sammála um að draga ekki úr þeim vinnutíma sem búið var að skipuleggja og endurskoða fjárveitingu í samræmi við það þannig að allir kæmust að. Albert Eymundsson bæjarstjóri sagði að það starf sem unglingarnir innu væri afar mikilvæg fyrir bæinn og þau skiluðu því með sóma. Þetta er alltaf að aukast en það er nóg að gera segir Guðrún Ása, við verðum ekki í neinum vandræðum með verkefni. Lesa meira
 
Happasæll KE-04 Ljósmynd: © Hafþór Hreiðarsson 2003

Skinney Þinganes kaupir Happasæl KE 94 - 09.06.2004 Júní

Skinney Þinganes hefur keypt fiskveiðiskipið Happasæl KE 94. Skipið er 357 brúttótonn smíðað í Kína 2001 og var eigandi þess útgerðarfélagið Happi ehf í Njarðvík. Gunnar Ásgeirsson hjá Skinney Þinganesi sagði að ekki fylgdu neinar aflaheimildir skipinu en það verður útbúið til netaveiða og einnig fyrir tog- og snurvoð. Skrifað var undir kaupsamninginn í gær og er Happasæll væntanlegur til sinnar nýju heimahafnar, Hornafjarðar, um mánaðarmót júní júlí nk. Ekki hefur verið ákveðið hver verður skipstjóri á nýja skipinu, Gunnar segir að það komi í ljós með haustinu. Lesa meira
 
Bjössi með fuglaskoðunarhópinn sinn

Úrval er af fjölbreyttri afþreyingarstarfsemi - 09.06.2004 Júní

Þetta var alveg rosalega gaman sagði ein daman úr krakkahópnum sem Björn Arnarson hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar fór með í fugla og náttúruskoðun, þegar þau komu til baka úr vel heppnaðri gönguferð. Hópurinn hélt frá Gömlubúð út á Ægissíðu þar sem er fjölskrúðugt fuglalíf, skoðuðu hreiður og fengu góða fræðslu hjá Birni um það sem fyrir augu bar. Þetta var fyrsta kynnisferðin fyrir af mörgum sem Menningarmiðstöðin stendur að fyrir krakkana í sumar. Kominn er út bæklingur sem æskulýðs-og tómstundarráð Hornafjarðar gefur út. Þar kemur fram að sumarstarfið í ár er fjölbreytt og ættu allir unglingar að finna sitthvað við sitt hæfi, eitthvað sem hæfir kunnáttu og hæfni hvers og eins. Lesa meira
 
VIð Óslandsbryggju 9. júní 2004 kl. 09:55

Sól og hiti næstu daga - 09.06.2004 Júní

Það er ekki laust við að Hornfirðingar og líklegast landsmenn allir brosi hringinn yfir veðrinu þessa dagana. Samkvæmt spánni þá munum við njóta þess næstu daga og fáum nokkuð háar hitatölur sem geta orðið allt að 17 stig. Á Jökulsárlóni í morgun var hitastigið um 13 gráður og ekki blakti hár á höfði samkvæmt tali við Einar Björn staðarhaldara. Ferðastraumurinn þar hefur aukist jafnt og þétt og í morgun voru um 100 manns búin að fara út á lónið. Í Skaftafelli bar við sama tóninn, 11 stiga hiti og logn og sagði Sólrún í upplýsingamiðstöðinni þar væri óvenjumikið af fólki miðað við miðvikudagsmorgun og von á enn meira af fólki þangað í dag. Lesa meira
 
Björn, Gunnlaugur og Siggi við smíðar í Haukafelli

Nýtt hús skóræktarfélagsins í Haukafelli - 09.06.2004 Júní

Um helgina sl. voru þeir Sigurður Karlsson og Björn Gunnlaugsson ásamt aðstoðarfólki að ganga frá undirstöðum undir hús skógræktarfélagsins í Haukafelli á Mýrum. Húsið er tilbúið og verður flutt á staðinn alveg á næstunni. Í húsinu verður snyrtiaðstaða, setustofa og aðstaða fyrir skógarvörð. Haukafell er orðinn vinsæll fjölskyldustaður, þar er búið að rækta mikið af plöntum á stóru svæði og komnir skjólgóðir staðir . Víðsýnt og fallegt er yfir að líta sé aðeins farið uppí brekkuna og auðvelt að finna góðar gönguleiðir um svæðið. Ef farið er inn með ánni sjást tóftir á árbakkanum af gamla Haukafellsbænum sem búið var í til 1880 en þá var bærinn fluttur frameftir, eins og sagt var og þar var búið til 1936. Lesa meira
 
4 flokkur SIndra

Sindrastelpurnar sigruðu Leikni 3-0 - 08.06.2004 Júní

Í hörkuspennandi leik sem fram fór á heimavelli Leiknis á Fáskrúðsfirði í gær mánudag, sigruðu Sindrastúlkurnar Leikni 3-0. Heba Björk Þórhallsdóttir skoraði öll mörkin. Stelpurnar spiluðu frábæran leik og var sigurinn verðskuldaður. Meistaraflokkur karla í 3.deild spiluðu við Leikni Fáskrúðsfirði í kvöld og endaði leikurinn með var jafntefli 2-2. Lesa meira
 
Golfvöllurinn skartar sínu fegursta

Sparisjóðsmótið um helgina - 07.06.2004 Júní

Keppt var í karla- og kvennaflokki hjá Golfklúbb Hornafjarðar og voru vegleg verðlaun í boði Sparisjóðs Hornafjarðar. Mót þetta er haldið árlega fyrstu helgina í júní og ber því ávallt upp á sjómannadagshelgina. Ekki þurftu þátttakendur að kvarta yfir starfsemi veðurguðanna því þar skein sól og ekki dropi úr lofti. Þrettán manns tóku þátt í golfmótinu. Mótið var punktakeppni en einnig var keppt í nándarhöggi og í flokki karla á annarri holu sigraði Jóhannes Gestsson og Vífill Karlsson á þeirri þriðju. Í kvennaflokki var það Guðný Helgadóttir sem sigraði á nándarhöggi á fyrstu og sjöttu holu. Lesa meira
 
Fjöldi manns fylgdist með skemmtiatriðinum

Fjöldi manns mætti á hátíðarhöldin niður á hafnarsvæðinu. - 05.06.2004 Júní

Fjöldi manns fylgdist með skemmtiatriðum niður við höfnina í dag og var þar margt til skemmtunar. Áhöfn Ásgríms Halldórssonar bar sigur úr bítum í kappróðrunum eftir harða keppni þar sem áberandi var hversu vel kvennaliðin stóðu sig. Flekahlaupið, þar sem keppendur þurftu að hlaupa yfir fleka sem voru fljótandi í sjónum og tengdir saman með spotta og lágu yfir í björgunarbát sem var hinum megin við flekana vakti mikla athygli og kátínu þegar að keppendur hver á eftir öðrum náði ekki að fóta sig og steyptist í sjóinn. Allt voru þetta ungir og hraustir drengir sem kepptu en verðlaunin voru bjór þegar í björgunarbátinn var komið. Eftir þessa vætu voru þeir tilbúnir í koddaslaginn. Áhöfn Sigurðar Ólfassonar sýndi hvernig björgunarbátum er skotið út notkun flotgalla. Lesa meira
 
Björn Sigfússon með nikkuna góðu (mynd:Gísli Örn)

Dagskrá sjómannadagsins - 04.06.2004 Júní

Nú líður að sjómannadeginum sem byrjar eftir tvo daga. Það verður mikið um að vera eins og venjulega, Kappróður, sýning þar sem Sigurður Ólafsson SF og Sómi SF setja út björgunarbáta, flekahlaup, koddaslagur og keppni í brottkasti “ekki er allt sem sýnist”, kaffisala í pakkhúsinu, hópsigling báta, Blómsveigur lagður að minnisvarða í Óslandi, Elvar Bragi Kristjónsson með trompetleik, Sjómannamessa í Hafnarkirkju og svo er það hátíðardagskráin á Hóteltúni þar sem verður m.a. Ávarp, heiðursmerki afhent, humarbingó þar sem allir þurfa að mæta með skriffæri og að sjálfsögðu flýgur flugvélin yfir með karamelluregn. Lesa meira
 
Einn af þeim stöðum Þar sem lögreglan vill sjá sjálflýsandi þverslá

Greinagerð um úrbætur í umferðinni innanbæjar - 04.06.2004 Júní

Lögreglan á Hornafirði hefur lengi verið með tillögur og ábendingar sem hún hefur reynt að koma á framfæri um það sem betur mætti fara í umferðinni hér innanbæjar, ábendingar um umferðarmerkingar á ákveðnum stöðum og ekki síst öryggismerkingar við höfnina. Nú hefur Jóhann Hilmar Haraldsson lögreglumaður á Hornafirði tekið saman og skráð öll þau atriði sem lögreglunni finnst full ástæða til að tekin séu til meðferðar og þeim komið í framkvæmd. Við þessa greinargerð hefur Jóhann notið aðstoðar félaga sinna í lögreglunni. “Við skulum standa saman í því að gera Höfn öruggari hvað umferðina varðar” segir Jóhann í grein sinni. Lesa meira
 
Frá leikjanámskeiði Sindra í morgun

Ævintýra og leikjanámskeið Sindra - 03.06.2004 Júní

Fyrsta leikjanámskeið Sindra byrjaði í þessari viku og er námskeiðið það fyrsta af fimm námskeiðum sem verða í sumar. Það verða Ævintýra og leikjanámskeið og knattspyrnu- og frjálsíþróttanámskeið. Hvert Ævintýra og leikjanámskeið stendur í 2 vikur frá mánudegi til föstudags en boltanámskeiðin standa yfir í eina viku. Á Ævintýra og leikjanámskeiðunum verður farið um víðan völl t.d. farið á hestbak, í veiðiferð og í golf svo fátt eitt sé nefnt. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6-9 ára og byrja þau kl. 9 og standa til 12, þó er hægt að mæta kl. 8 með börn í gæslu. Lesa meira
 
Félagarnir Jón Gunnar og Siggi Einars við vígsluna á tennisvellinum

Tennisvöllur tekinn í notkun við Hafnarskóla - 03.06.2004 Júní

Krakkar á öllum aldri geta nú farið að leika sér í tennis, en í dag var óformlega tekinn í notkun tennisvöllurinn við Hafnarskóla. Aðgangur er frjáls, nema iðkendur verða að hliðra til hver fyrir öðrum þannig að 1 hópur ( 4-6 einstaklingar ) spili ekki nema um 1 klukkustund, ef aðrir koma til að leika sér á meðan. Annars auðvitað eins og menn vilja. Áhöld þ.e. spaða og bolta má fá í íþróttahúsinu milli kl. 8 og 16 virka daga en skila verður á sama stað í sama ásigkomulagi. Svo er vísast hægt að verða sér útum tækin í verslunum á staðnum svo iðkendur þurfi ekki að vera háðir opnunartíma íþróttahúss.Iðkendur verða að setja upp net í byrjun og þeir er síðastir eru á vellinum taka það niður og leggja uppundir vegg við skólann. Lesa meira
 
Vorgangan hjá leikskólunum á Höfn

Leikskólarnir í skrúðgöngu um götur Hafnar - 02.06.2004 Júní

Í leikskóla er gaman, þar leika allir saman... heyrðist óma um götur Hafnar þegar að krakkarnir á Leikskólunum Lönguhólum og Krakkakoti gengu í skrúðgöngu um götur bæjarins og sungu vor- og leikskólalög með lögregluna í broddi fylkingar. Labbað var frá Lönguhólum, Víkurbrautina, Hafnarbrautina og sem leið lá niður í Miðbæ þar sem sundið var fyrir gesti og gangandi. Krakkarnir fengu ís niður í Miðbæ enda ekki hægt að sleppa því í þeirri miklu veðurblíðu sem verið hefur í dag. Lesa meira
 
Efst á hryggnum frá Vestur-Hnútu að Þumli. Morsárdalur og Skaftafell í baksýn. (mynd: Einar Sig)

Fullbókað er að verða í allar gönguferðir hjá Öræfaferðum - 02.06.2004 Júní

Fyrir nákvæmlega tíu árum fór Einar Sigurðsson fjallaleiðsögumaður í Hofsnesi sína fyrstu leiðsöguferð með sex manna hóp uppá Hvannadalshnúk. Um síðustu helgi fór hann með þennan sama hóp upp að Þumli sem er aðeins vestan við Miðfellstind og norðan við hann er Vatnajökull með alla sína víðáttu. Þetta var stórkostleg ferð og tók gangan 19 klst. segir Einar. Við gengum frá Skaftafelli inn Morsárdal upp að Þumli, hring á eggjunum á Kjósinni og þaðan niður í Bægisstaðar skóg og til baka í Skaftafell. Leiðin á Þumal er mjög erfið leið og ekki fyrir aðra en vel búið og vel þjálfað fjallgöngufólk. Að ganga eggjarnar og horfa niður í Kjósina er alveg ógleymanlegt, þarna er geysilega bratt niður á báðar hendur og ekki fyrir gönguleið fyrir lofthrædda. Þarna þurftum við að nota brodda, ísaxir og línu fleiri km.af leiðinni. Lesa meira
 
Geir Þorsteinsson byggingarverktaki er meðal þeirra Hornfirðinga sem nýta sér reiðhjólið

Hornfirðingar í 5 sæti með 1.134 kílómetra að baki - 02.06.2004 Júní

Úrslitin í "Hjólað í vinnuna 2004" liggja nú fyrir og stóðu Hornfirðingar sig mjög vel og lentu í 5 sæti með flesta hjólaðað daga og í 10 sæti með flesta hjólaða kílómetra. Tvær stofnanir í sveitarfélaginu voru í öðru sæti í sínum flokki, Heilbrigðisstofnun og Hafnarskóli með hjólaða daga. Alls tóku 289 lið frá 162 fyrirtækjum og stofnunum frá 29 sveitarfélögum þátt í keppninni. Þátttakendur voru 2510, þátttökudagarnir 12.146 (4.84. að meðaltali) og alls voru farnir 93.557 km (37,27 km að meðaltali) sem eru 70 hringir í kringum landið. Þau fyrirtæki og stofnanir á Hornafirði sem tóku þátt voru Heilbrigðisstofnun Suðausturlands, Hafnarskóli, Leikskólarnir Lönguhólar og Krakkakot, Nesjaskóli, Hafnar-Apotek og Sparisjóður Hornafjarðar. Lesa meira
 
Sóley Ómarsdóttir með kettlinginn

Máttur SkjáVarps er mikill - 01.06.2004 Júní

Það er ekki óalgengt að tilkynningar um heimilisdýr sem ekki hafa ratað til síns heima birtast á SkjáVarpi og nær undantekningarlaust þá tekur það ekki nema daginn að eigandi eða einhver sem þekkir til viðkomandi heimilisdýrs lætur vita í uppgefið símanúmer. Þetta gerðist nú síðast í daga þegar Sóley Ómarsdóttir lét vita af litla gulbröndótta kettlingnum sem hún fann á Hrísbrautinni. Eigandinn sá mynd af kettlingnum á SkjáVarpi og sótti kisu til Sóleyjar um miðjann daginn í dag. Lesa meira
 
Vestragil, Gamla rafstöðin í Skaftafelli

Írar, Bretar, Danir og Skotar sjólfboðaliðar í Skaftafelli - 01.06.2004 Júní

Margt fólk kom í Skaftafell um helgina og um 40 tjöld voru þar. Veður var hið besta sólskin og 17-18° hiti. Íslenskir fjallaleiðsögumenn fóru með 40 manna hóp á Hvannadalshnúk þó ekki viðraði vel á þeim slóðum, þar var mjög hvasst 23-25 m.og varla stætt, en þeir létu sig hafa það, sagði Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður. Sjálfboðaliðar eru komnir til vinnu í þjóðgarðinum og fleiri eru á leiðinn. Þetta eru Írar, Bretar, Skotar og Danir sem verða hér í viku, síðan kemur næsti hópur 21. júní. Við verðum með sjálfboðaliða í allt sumar og þeir byrja á að smíða fleka (brýr) sem notaðir verða á mýrarsvæði á gönguleiðinni frá Svartafossi að Sjónarnípu. Lesa meira
 
Brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi (úr myndasafni EBE)

Árekstur á brúnni yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi - 01.06.2004 Júní

Tveir fólksbílar lentu í árekstri á brúnni yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi í gærkvöldi um kl.21:30. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. Tveir voru í öðrum bílnum og fjórir í hinum. Bílarnir voru á leið til Eskifjarðar og Reykjavíkur. Læknir og sjúkrabíll ásamt bifreið frá Björgunarfélagi Hornafjarðar voru send á staðinn frá Höfn. Bílarnir voru mjög skemmdir eftir áreksturinn og er annar bíllinn talinn ónýtur. Fjarlægja þurfti bílana kranabíl. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica