Ríki Vatnajökuls - Maí
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Útlendingar hrifnir að lundaskoðun í Ingólfshöfða
      <description>Skoðunarferðir í Ingólfshöfða eru mikil upplifun og þeim sem þangað fara hefur fjölgað ár frá ári. Sigurður Bjarnason í Hofsnesi byrjaði að fara með ferðafólkút í Ingólfshöfða árið 1991 og notaði og notar enn kerru aftan í dráttarvél til að flytja fólk út í höfðann. Sigurður og Einar sonur hans stofnuðu fyrirtækið Öræfaferðir sem núna er með 2 til 3 ferðir á dag, ef veður leyfir, út í Ingólfshöfða yfir ferðatímann. Þetta byrjaði í vor á föstudaginn langa og við erum búnir að fara nokkuð margar ferðir með fólk út í höfðann segir Sigurður og er það aðallega lundinn sem er skoðaður. Útlendingarnir  sækjast eftir að skoða lundann um varptímann en þarna verpa um 50 þúsund lundapör. Geldfuglarnir (lundarnir) eru þessa dagana að koma í höfðann en þeir eru miklu seinna á ferðinni en varpfuglinn, þeir eru mikið gæfari svo hægt er að komast að þeim í svona meters færi. Sigurður segir að lundinn byrji ekki að verpa fyrr en hann er orðinn 5-8 ára, einu eggi hverju sinni, en talið er að lundar verði 40 til 60 ára gamlir</description>
Brjálað að gera í Svínafelli í Öræfum
      <description>Það er búið að vera brjálað að gera hér núna undanfarið sagði Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustubóndi í Svínafelli í Öræfum, þegar hann var spurður frétta fyrir hvítasunnuhelgina. Svefnpokapláss í Svínafelli voru full og ætluðu flestir sem þar voru að freista þess að ganga á Hvannadalshnúk. Veðrið á laugardeginum mun þó hafa sett áætlun fjallgöngumanna úr skorðum því leiðinda veður var í austanverðri Öræfasveit og á leiðinni á Hvannadalshnúk hvasst og rigning en í Svínafelli og Skaftafelli var logn, sól og hiti.</description>
Ánægðir með lögin um  krókaaflamarkið
      <description>Veiði smábáta á Hornafirði hefur gengið þokkalega í vor og veiði verið allt frá litlu uppí gott, eins og Unnsteinn Guðmundsson trillukarl komst að orði þegar hann var spurður um fiskirí og hann segir að þetta sé heldur lakara en í fyrra. Unnsteinn segir að smábátasjómenn  á Hornafirði séu ánægðir með nýju lögin um krókaaflamarkið. “Okkur líst vel á þetta og það eru flestir hér sem hafa verið með krókaaflamark nema eitthvað 3-4 sem verið hafa með sóknardagakerfi. Þeir komast þokkalega frá þessu og ég held að þetta komi betur út fyrir heildina. Það eru margir sem eru með þetta frá 30 til 70 tonna kvóta, misjafnt hvað menn hafa getað keypt sér kvóta”.</description>
      <alt>Unnsteinn Guðmundsson trillukarl</alt>
Verður sól og verður blíða!
      <description>Nú þegar stór ferðamannahelgi gengur í garð er ekki úr vegi að líta á það sem veðurfræðingar landsins bjóða upp á. Það er öllum ljóst að veðurfræðingarnir stjórna líðan landans frá degi til dags og sumir hafa þá bjargföstu trú að þeir hreinlega stjórni veðrinu, sem er nú kannski svolítið ýkt. Í viku byrjun litu veðurkortin vel út fyrir okkur Hornfirðinga en er líða tók á vikuna breyttust þau hægt og hægt til verri vegar. Auðvitað eru veðurfræðingar ekki óskeikulir og við skulum vona að það rigni aðeins á nóttunni og við fyrsta hanagal brjótist sólin út úr skýjunum og allir uni ánægðir við sitt. Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt, 5-13 m/s og skýjað, hvassast vestantil og víða súld eða dálítil rigning síðdegis. Austan 8-13 og dálítil súld eða rigning í nótt og á morgun. Hiti 8 til 13 stig.</description>
Leikjanámskeið að hefjast
      <description>Þriðjudaginn 1. júní hefjast ævintýra og leikjanámskeið Sindra. Alls verða námskeiðin fimm í sumar. Þrjú leikjanámskeið og tvö knattspyrnu- og frjálsíþróttanámskeið. Ævintýra- og leikjanámskeiðin standa yfir í tvær vikur frá mánudegi til föstudags en boltanámskeiðin í eina. Á námskeiðunum verður m.a. farið á hestbak, í veiðiferð og golf svo fátt eitt sé nefnt. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára og standa yfir milli 9 og 12. Einnig er boðið upp á gæslu fyrir krakkana milli kl. 8 og 9. Fyrsta námskeiðið hefst eins og áður segir 1. júní en það síðasta hefst 9. ágúst.</description>
Ein stærsta sýning ársins á Austurlandi
      <description>Sýningin Austurland 2000 fer fram dagana 10. – 13. júní n.k. á Egilsstöðum, nánar tiltekið í Íþróttamiðstöðinni. Á sýningunni munu 120 einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir kynna starfssemi sína. Búist er við um 8 þúsund gestum á sýninguna og þeirra á meðal eru forseti Íslands og forsetafrú, alþingismenn Norðausturkjördæmis, ráðherrar, forystumenn ýmissa hagsmunasamtaka á Íslandi, sveitarstjórnarmenn á Austurlandi og fleiri. Mikil samstaða er á meðal Austfirðinga um að gera sýningardagana ógleymanlega. Fjöldi viðburða verður í fjórðungnum þá daga sem sýningin stendur yfir, dansleikir, sýningar o.fl. Sérstök aðstaða verður fyrir börn og skemmtileg leiktæki verða sett upp á sýningarsvæðinu.</description>
Skólaslit í Grunnskólum Hornafjarðar
      <description>Á morgun föstudag verður Grunnskólum Hornafjarðar slitið og krakkarnir fá þar með langþráð sumarfrí. Foreldrar sem eiga börn í flestum eða öllum skólunum munu hafa næg verkefni á morgun en Grunnskóli Hornafjarðar er þrískiptur og því verða þrenn skólaslit á morgun. Nesjaskóli ríður á vaðið og verða skólaslit skólans haldin í Mánagarði kl. 10:00. Rútur munu leggja af stað frá fyrstu biðstöð kl. 9:30. Klukkan 11:30 verður síðan Hafnarskóla slitið í Hafnarkirkju og skólaslit Heppuskóla verða kl. 14:00 einnig í Hafnarkirkju.</description>
Golfvertíðin komin á fulla ferð
      <description>Í gær hófst hjá Golfklúbbi Hornafjarðar mótaröð sem spiluð verður næstu 6 miðvikudaga og gilda fjögur bestu skorin. Þessi mótaröð er nýjung hjá golfklúbbnum og er það Golfverslunin í Dalshrauni, Hafnarfirði sem styrkir þessa mótaröð. Alls mættu 15 kylfingar til leiks í gær, þrjár konur og tólf karlar. Um Hvítasunnuhelgina verður golfkennsla á vegum klúbbsins og er þar um einkatíma að ræða bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Kennari er hin alkunni golfsnillingur okkar Hornafirðinga Halldór Sævar Birgisson. 
Næsta mót á vegum félagsins er Sparisjóðsmótið sem fer fram laugardaginn 5. júní.</description>
Snjóflóð féll nálægt gönguleið
      <description>Snjóflóð féllu skammt frá gönguleiðinni upp á Hvannadalshnúk sl. sunnudag. Einar Sigurðsson fjallaleiðsögumaður á Hofsnesi í Öræfum var á toppi Hvannadalshnúks með níu manna ferðahóp ásamt öðrum leiðsögumanni. Við heyrðum allt í einu miklar drunur og sáum að snjóflóð hafði farið af stað stutt frá gönguleið okkar upp á Hnúkinn og sáum hvar það hafði farið hlíðina sagði Einar. Ég er búinn að fara þarna um með fólk sl. 10 ár og hef aldrei fyrr séð snjóflóð  falla á þessum slóðum. Þetta var mjög nálægt uppgöngu á Hnúkinn þar sem flestir fara upp. Hallinn er ívið brattari þar sem flóðið fór af stað en hluti flóðsins fór úr sama halla og við vorum að ganga upp. Það er því alveg fræðilegur möguleiki á að snjórinn fari af stað þegar menn eru að ganga upp hlíðina. Þetta er sá tími sem helst er hætta á að flóð komist á stað þegar kalt er um morguninn og svo kemur logn og hiti.</description>
Nemendur Hafnarskóla á ferð og flugi
      <description>Mikið hefur verið um að vera hjá nemendum Hafnarskóla undanfarið, og síðustu dagar skólaársins verið vel nýttir. 7. bekkur lagði í langferð til Vestmannaeyja s.l. mánudag og eru væntanleg heim um kl.19:00 í kvöld. Ferðin hefur gengið vel þrátt fyrir smá sjóveiki í Herjólfi og hafa krakkarnir átt ánægjulega daga. Í dag var farið í pizzuhlaðborð og sund á Selfossi og þaðan lá leiðin að Seljalandsfossi og síðan áfram í austur átt. Á mánudaginn fór 4. bekkur í ferðalag inn í Geitafell. Farið var í langan göngutúr og að honum loknum voru grillaðir hamborgarar og pylsur, farið í leiki og síðast en ekki síst vaðið í læknum. Vatnið þótti frekar kalt en börnin létu það ekki aftra sér og tóku sum sundtökin í köldu vatninu. Sama dag gróðursettu nemendur í 6. bekk Hafnarskóla rúmlega áttahundruð birkiplöntur inn í skólaskógum við Drápskletta. Eftir það fóru allir niður að höfn og fengu að róa á róðrabátum Sjómannadagsráðs.</description>
Góð mæting á Hestadaginn
      <description>Firmakeppni Hestamannafélagsins Hornfirðings fór fram í sl fimmtudag, uppstigningardag við Stekkhól. Ekki viðraði vel og á tímabili leit út fyrir að ekki yrði hægt að halda mótið og hestadag fjölskyldunnar (sem ákveðið var að halda fyrir mótið), vegna mikillar snjókomu sem nær eingöngu var á og við völlinn og var á tímabili nánast ófært inn á völlinn. Ekki létu menn þetta á sig fá og var góð mæting á hestadaginn og voru hátt í 30 börn sem skelltu sér á hestbak og skoðuðu hesthús ofl. 
Firmakeppninn hófst svo kl. 16:00 og var þá snjórinn nánast allveg tekinn upp og skollið á þetta fína sumarveður.
Góð þátttaka var í flestum flokkum nema unglingaflokk þar sem einungis einn knapi mætti.</description>
Jafntefli hjá stelpunum
      <description>Í gær var fyrsti leikur Sindra á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Meistaraflokkur kvenna atti þá kappi við Fjarðabyggð og fór leikurinn fram á Neskaupstaðarvelli. Lokatölur leiksins urðu 3 – 3, í leik þar sem Sindri hefði hæglega getað hirt öll stigin. Mörk Sindra skoruðu þær Jóna Benný Kristjánsdóttir, Karítas Þórarinsdóttir og María Emilsdóttir. Næsti leikur hjá stelpunum verður 3. júní gegn Hetti og verður leikið á Egilsstöðum. Fyrsti heimaleikur mfl. kvenna hjá Sindra verður 15. júní á Sindravöllum. Í 1. deild kvenna C riðill eru aðeins þrjú lið Sindri, Fjarðarbyggð og Höttur og verður leikin fjórföld umferð.</description>
Einbreiðum brúm fækkar í Öræfum
      <description>Undanfarið hefur verið unnið að lagfæringu einbreiðra brúa í Öræfum. Brúarvinnuflokkur Sveins Þórðarsonar í Vík hefur verið að setja ný brúargólf  á Skaftafellsá, Svínafellsá,Virkisá, Gljúfurá, Hólá og Stigá og er því verki að verða lokið. Suðurverk ehf. lauk um síðustu helgi að setja hólk í Heiðarlækinn sem er spölkorn sunnan við vegamótin í Skaftafell og með þeirri framkvæmd hvarf ein  af mörgum einbreiðum brúm í Öræfum.</description>
Átján útskrifast í reiðmennsku frá FAS
      <description>Átján nemendur í Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu útskrifuðust í gær með fyrsta stigi í reiðmennsku og ellefu þeirra tóku einnig annað stig. Reiðmennska var kennd í FAS eftir áramót og kennari var Hanný Heiler. Í fyrsta stigi eru 14 kennslustundir og 28 í öðru stigi og er námið bæði verklegt og bóklegt. Námið skiptist í fimm stig. Mikill áhugi er  á reiðmennskunáminu og eru nemendurnir sem voru í skólanum í vetur frá 13 ára uppí 53 ára. Hanný segir vel koma til greina að halda áfram með þessi námskeið utan skóla í sumar ef næg þátttaka yrði. Í framhaldsskólanum fá nemendur viðurkendar einingar út á reiðmennskunámið og fimmta stigið veitir réttindi inn í Hólaskóla. Prófdómari við útskriftina var Kristín Kárusdóttir á Kirkjubæjarklaustri.</description>
Ferðalangar farnir að tylla sér á tjaldsvæðið
      <description>Sumarið er komið og fyrstu ferðalangarnir farnir að tylla sér niður á tjaldsvæðið á Hornafirði. Ekki þurfa ferðalangar að kvarta undan veðráttunni þessa dagana og margt sem bendir til þess að blíðan haldist næstu dagana. Þjónustumiðstöð SKG sér um rekstur tjaldstæðisins en það eru hjónin Hugi Einarsson og Sigríður Kapitola Guðrúnardóttir sem eiga og reka það fyrirtæki. Hugi sagði að þetta væri fjórða sumarið sem þau væru með tjaldstæðið og að öllu óbreyttu yrðu þau þarna næstu þrjú árin. Í nótt voru 10 manns sem gistu tjaldstæðið og þrír að auki gistu í smáhýsunum. Þetta var fjölþjóðlegur hópur sagði Hugi, 4 Þjóðverjar, 4 Finnar, 2 Íslendingar og 3 Danir.</description>
Aðalfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði
      <description>Aðalfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði var haldinn mánudaginn 24. maí síðastliðinn í fundarhúsi Vökuls. Á fundinum var kjörin ný stjórn félagsins. Úr fráfarandi stjórn gáfu allir kost á sér til áframhaldandi setu nema Þorvaldur Jón Viktorsson sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa sem formaður. Í hans stað var kjörinn formaður Árni Rúnar Þorvaldsson.</description>
Neisti á toppnum í 3. deild karla D riðill
      <description>Þá er boltinn í þriðjudeild karla D riðils farinn að rúlla. Fyrstu umferð lauk í gær en sjö lið leika í riðlinum þannig að eitt lið situr hjá í hverri umferð og kom það í hlut okkar manna að þessu sinni. Í fyrstu umferðinni fengu Neisti, Einherja í heimsókn og lauk þeim leik með góðum 3 – 0 sigra Neista. Höttur tók á móti Leikni á Eiðavöllum og unnu Leiknismenn leikinn 2 – 0 og skoraði Daði Már Steinsson bæði mörkin. Síðasti leikurinn var viðureign Fjarðarbyggðar og Hugins og fór sá leikur fram á Neskaupstaðarvelli. Huginn vann þann leik 3 – 0 og skoraði Andri Bergmann Þórhallsson öll mörkin. Staðan í riðlinum eftir fyrstu umferð er því þannig að Neisti, Huginn og Leiknir eru með þrjú stig en önnur lið eru án stiga.</description>
Slökkvibifreið í háar Hæðir
      <description>Tekist hefur að aka slökkvibifreið Öræfinga upp í háar Hæðir ( í Skaftafelli). Upp að húsinu á Hæðum er vegurinn mjór, krappar beygjur, brattur og erfiður stórum bílum. Þessi tilraun tókst með ágætum, enda er Halldór Þorsteinsson í Svínafelli sem ók bílnum afburða bílstjóri, og niður komst hann aftur heill á húfi. Að sögn Ragnars Frank þjóðgarðsvarðar og ábúanda á Hæðum, líst Halldóri ekki á að aka slökkvibílnum þarna niður brekkuna að vetri til ef hálka eða snjór væri.
Þessi prufutúr á bílnum var farin að beiðni Steinþórs Hafsteinssonar slökkviliðsstjóra til að kanna hvort þessi stóri bíll með 12 tonnum af vatni kæmist að bæjunum í Skaftafellsbrekkum ef  á þyrfti að halda vegna eldsvoða.</description>
Varnargarðar við Hólmsá
      <description>Bæjarráð Hornafjarðar hefur fjallað um mál er varðar Hólmsá á Mýrum og samgönguvandamál við Suðurfjörur. Á fundinum var lagt fram bréf frá Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið um gerð varnargarða austan Hólmsár neðan þjóðvegar nr.1. Þar kemur fram að lausleg kostnaðaráætlun sé um 6 millj.kr. og er farið fram á að sveitarfélagið kosti helming verksins. Halldóra B. Jónsdóttir formaður bæjarráðs segir að unnið sé að undirbúningi málsins og verið sé að senda það í allar þær nefndir í bæjarkerfinu sem þurfa að fjalla um það og samþykkja.</description>
Sumaráætlun Íslandsflugs tekur gildi í dag
      <description>Í dag tekur gildi sumaráætlun Íslandsflugs til Hornafjarðar. Sumaráætlunin gildir frá 24. maí til 31. ágúst. Fjóra daga í viku verður boðið upp á tvö flug á dag, eitt flug verður á sunnudögum en ekkert verður flogið til Hornafjarðar á þriðjudögum og laugardögum. Þeir dagar sem flogið verður tvisvar á dag eru mánudagar, miðvikudagar, fimmtudagar og föstudagar. Fyrra flugið þessa daga er með brottför frá Reykjavík kl. 8:15 og til baka frá Höfn kl. 9:45. Síðara flugið er með brottför frá Reykjavík kl. 16:15 og frá Höfn kl. 17:45. Á sunnudögum verður flogið frá Reykjavík kl. 13:45 og til baka frá Höfn kl. 15:15.</description>
Útskrift hjá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu
      <description>Föstudaginn 22. maí fór fram útskrift í Framhaldskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Þetta er í 13. skiptið sem stúdentar eru útskrifaðir frá skólanum. Að þessu sinni útskrifuðust 6 stúdentar og einn sjúkraliði. Eftirtaldir nemendur luku stúdentsprófi: Birna Þrúður Sigurbjörnsdóttir, Bryndís Björk Hólmarsdóttir, Eva Lind Björnsdóttir, Ingibjörg Zophoníasdóttir, Sigursteinn Haukur Reynisson og Þórey Harpa Þorbergsdóttir. Auk þess lauk Valgerður Hanna Úlfarsdóttir sjúkraliðabraut. Dúx var Sigursteinn Haukur Reynisson.</description>
Krakkar í Hafnarskóla á leið til Vestmannaeyja
      <description>Klukkan 5:45 í morgun lagði 7. bekkur í Hafnarskóla af stað í hina árlegu Vestmanneyjaferð skólans. Það var góður hópur af mjög spenntum börnum sem kom sér fyrir í rútunni hjá Sumarliða tilbúin að takast á við ævintýri næstu daga. Leiðin liggur nú til Þorlákshafnar þar sem Herjólfur verður tekin kl. 11:00. Í Vestmannaeyjum verður hópurinn í umsjá Ferðaþjónustunnar Viking tours og mun m.a. verða farið í bátsferð, söfn bæjarins skoðuð, skotist í sund, ekið um eyjuna og sprangað. Ágætisveður var í Vestmannaeyjum kl. 6:00 í morgun, logn, léttskýjað og hiti 8,0°. Veðurspá fyrir næsta sólarhring gerir ráð fyrir hægri norðlægri átt og léttskýjuðu í dag en suðlægari átt á morgun og þykknar upp. Hiti 7 – 12 stig.</description>
Hvar er sumarið
      <description>Ekki hefur veðrið leikið við landann undanfarið og ekki lítur út fyrir stórkostlegar breytingar á veðri næstu dagana. Veðurhorfur næsta sólarhringinn gera ráð fyrir suðvestan 5-10 m/s og rigningu eða súld með hita á bilinu 6 – 10 stig. Ef litið er á veðurspá næstu viku gerir Veðurstofan ráð fyrir lítilsháttar súld norðaustanlands á sunnudag en léttskýjað sunnan- og vestanlands. Frá mánudegi til fimmtudags er gert ráð fyrir hægri suðaustlægri eða breytilegri átt, skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti 7 til 16 stig, svalast úti við sjóinn.</description>
Alltaf eitthvað í gangi á Hornafirði
      <description>Hornfirðingum á ekki að þurfa að leiðast um þessa helgi frekar en flestar helgir ársins. Í dag eru skólaslit Tónskólans í Austur-Skaftafellssýslu og verða þeir haldnir í Hafnarkirkju kl. 17:30 og eru allir velkomnir til að hlíða á ljúfa tóna nemenda. 
Stærsti viðburður helgarinnar í listalífinu er án efa frumflutningur á Íslandi á “Skáldið og Sekkjapípuleikarinn” sem er nýjasta afurð Nóbelsverðlaunahafans Seamusar Heaneys og hins virta írska tónlistarmanns Liams O’Flynn. Dagskráin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og verður flutt í Nýheimum á laugardagskvöld kl. 21:00.</description>
Golfvertíðin að byrja
      <description>Nú styttist í að golfvertíðin byrji. Á morgun laugardag verður haldið fyrsta golfmót sumarsins og hefst það kl. 9:00. Margir glæsilegir vinningar verða í boði og er það verslunin Lónið sem gefur vinningana. Í sumar verður sú nýbreytni tekin upp hjá Golfklúbbi Hornafjarðar að spiluð verður mótaröð á miðvikudögum frá 26. maí til 30. júní, alls sex skipti. Mótafyrirkomulag verður þannig að spilarar þurfa að leika lágmark fjóra daga af þessum sex enda gilda fjórir bestu dagarnir. Spila má hvenær sem er yfir daginn, en þó verða tveir að spila saman og skila þarf korti í skála strax eftir leik. Þátttökugjald er kr. 2.000 sem skilast með fyrsta skorkorti. Glæsileg verðlaun verða í boði og er það Golfverslunin í Dalshrauni, Hafnarfirði sem styrkir þessa mótaröð.</description>
Tíu smáhýsi til viðbótar í byrjun júní
      <description>Þeir eru einbeittir félagarnir Magnús og Jón Stefán Náttbólsmenn þar sem þeir eru að dytta að húsunum við Tjaldsvæðið og gera þau klár áður en ferðatíminn byrjar. Á myndina vantar Gústa Tobba sem var með pensilinn á lofti við eitt af húsunum. Nú líður að því að þeir geti farið að setja upp tíu smáhýsi til viðbótar en þau munu koma fyrir aftan þau sem fyrir eru. Reiknað er með að uppsetning þeirra geti hafist í byrjun júní en þá er tími auglýsingar um nýtt deiliskipulag liðinn og hægt að hefjast handa við uppsetningu húsanna.</description>
Sól í Lóni, snjór í Nesjum
      <description>Uppstigningardagurinn bíður okkur upp á nokkuð óvenjulegt veður eða sýnishorn af nokkrum veðurbrigðum í nágrenni Hafnar, á Mýrum er rjóma blíða og trjávöxtur í fullum gangi, í Nesjum var allt hulið snjó um tíma og náði snjórinn niður Skarðsdal í Lóni og þegar komið var fram hjá Þorgeirsstöðum á austurleið þá var eins og við manninn mælt, sól og flott veður, hitastig um 6-8 gráður. Kjörið fyrir þá athafnamenn sem nú standa í girðingarframkvæmdum við nýju sumarbústaðarlóðirnar í Stafafellsfjöllum.</description>
Gerard Butler í hlutverki Bjólfs
      <description>Búið er að finna leikarann sem tekur að sér hlutverki Bjólfs í kvikmyndinni Bjólfskviðu sem tekin verður upp hér í Sveitarfélaginu, það er skotinn Gerard Butler sem mun verða Bjólfur. Gerard er fæddur í Skotlandi en er af írskum ættum. Fyrsta myndin sem hann lék í var Mrs. Brown (1997) en það má segja að hann hafi byrjað feril sinn þegar hann lék í James Bond myndinni Tomorrow Never Dies (1997) og ári síðar í Tale of the Mummy. Gerard er meðal þeirra sem nefndir hafa verið sem arftakar Pierce Brosnan í hlutverk breska njósnarans James Bond.</description>
Fastakúnni á Ósnum í 14 ár
      <description>Þórólfur Jóhannsson eða Tóki eins og hann er kallaður hefur verið fastakúnni á Ósnum hjá þeim félögum Gísla Már og Óðni í 14 ár. Þórólfur byrjaði að venja komu sínar á "Gamla Ósinn" við Hafnarbraut strax þegar hann opnaði og hefur haldið tryggð við Ósinn æ síðan, en veitingastaðurinn Ósinn er staðsettur á Hótel Höfn. Þórólfur hefur því ekki látið sér nægja að sigla um ósinn í starfi sínu sem sjómaður. Eins og allir vita er Þórólfur einn allra harðasti stuðningsmaður Arsenal á Íslandi og þó víðar væri leitað og fer hann reglulega á leiki félagsins erlendis og auðvitað er hann fyrstur manna á Ósinn til að horfa á leikina í ensku knattspyrnunni. Og ekki leiddist honum mjög á síðasta tímabili, enda tapaði liðið hans ekki leik í enskaboltanum.</description>
Hjólað í vinnuna á Hornafirði
      <description>Á mánudaginn var fyrsti keppnisdagur í “Hjólað í vinnuna” en keppnin stendur yfir frá 17. maí til 28. maí. Á fyrsta degi höfðu 110 fyrirtæki með 172 lið skráð sig til keppni og eru skráðir liðsmenn um 1.000. Samkvæmt stöðulista í gær var Sveitarfélagið Hornafjörður í 5. sæti af 20 sveitarfélögum, en fimm fyrirtæki eða stofnanir eru skráð til keppni á Hornafirði. Glæsilegir viðurkenningarskildir verða veittir fyrir þrjú efstu sætin í hverjum fyrirtækjaflokki. Nú er bara um að gera fyrir Hornfirsku fyrirtækin sem þátt taka í keppninni að taka vel á og skila mörgum kílómetrum í hús og allir hinir sem ekki eru skráðir til keppni sýna stuðninginn í verki og hjóla, labba eða skokka í vinnuna.</description>