Maí
Ingólfshöfði (Mynd Einar Sig.)
Ingólfshöfði (Mynd Einar Sig.)
Ingólfshöfði (Mynd Einar Sig.)

31.05.2004 Maí

Útlendingar hrifnir að lundaskoðun í Ingólfshöfða

Skoðunarferðir í Ingólfshöfða eru mikil upplifun og þeim sem þangað fara hefur fjölgað ár frá ári. Sigurður Bjarnason í Hofsnesi byrjaði að fara með ferðafólkút í Ingólfshöfða árið 1991 og notaði og notar enn kerru aftan í dráttarvél til að flytja fólk út í höfðann. Sigurður og Einar sonur hans stofnuðu fyrirtækið Öræfaferðir sem núna er með 2 til 3 ferðir á dag, ef veður leyfir, út í Ingólfshöfða yfir ferðatímann. Þetta byrjaði í vor á föstudaginn langa og við erum búnir að fara nokkuð margar ferðir með fólk út í höfðann segir Sigurður og er það aðallega lundinn sem er skoðaður. Útlendingarnir sækjast eftir að skoða lundann um varptímann en þarna verpa um 50 þúsund lundapör. Geldfuglarnir (lundarnir) eru þessa dagana að koma í höfðann en þeir eru miklu seinna á ferðinni en varpfuglinn, þeir eru mikið gæfari svo hægt er að komast að þeim í svona meters færi. Sigurður segir að lundinn byrji ekki að verpa fyrr en hann er orðinn 5-8 ára, einu eggi hverju sinni, en talið er að lundar verði 40 til 60 ára gamlir

Geld-lundar í höfðanum eru um 300 þúsund og eru því alls um 400 þúsund lundar í höfðanum ásamt mörgum öðrum fuglategundum og er vel líflegt þarna.
Um fjögur þúsund ferðamenn fóru út í Ingólfshöfða í fyrra og hefur aðsókn aukist ár frá ári. Sigurður segir að hver ferð taki þrjá tíma og þar í er lámark eins og hálfs til tveggja tíma gönguferð um höfðann og hlítt á skemmtilegar frásagnir tengdar þessum stað allt frá því að Ingólfur Arnarsson kom þar að landi.
Ekki viðraði til ferða í höfðann síðustu tvo daga vikunnar er leið, en farið verður þegar veður leyfir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica