Maí
Unnsteinn Guðmundsson trillukarl
Unnsteinn Guðmundsson trillukarl

30.05.2004 Maí

Ánægðir með lögin um krókaaflamarkið

Veiði smábáta á Hornafirði hefur gengið þokkalega í vor og veiði verið allt frá litlu uppí gott, eins og Unnsteinn Guðmundsson trillukarl komst að orði þegar hann var spurður um fiskirí og hann segir að þetta sé heldur lakara en í fyrra. Unnsteinn segir að smábátasjómenn á Hornafirði séu ánægðir með nýju lögin um krókaaflamarkið. “Okkur líst vel á þetta og það eru flestir hér sem hafa verið með krókaaflamark nema eitthvað 3-4 sem verið hafa með sóknardagakerfi. Þeir komast þokkalega frá þessu og ég held að þetta komi betur út fyrir heildina. Það eru margir sem eru með þetta frá 30 til 70 tonna kvóta, misjafnt hvað menn hafa getað keypt sér kvóta”.

Unnsteinn segir trillukarla hafa verið með tvö kerfi þar sem sumir séu í aflamarki eins og er hjá togurum og aðrir með krókaaflamark sem nú er komið í lög.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica