Leikjanámskeið að hefjast
Þriðjudaginn 1. júní hefjast ævintýra og leikjanámskeið Sindra. Alls verða námskeiðin fimm í sumar. Þrjú leikjanámskeið og tvö knattspyrnu- og frjálsíþróttanámskeið. Ævintýra- og leikjanámskeiðin standa yfir í tvær vikur frá mánudegi til föstudags en boltanámskeiðin í eina. Á námskeiðunum verður m.a. farið á hestbak, í veiðiferð og golf svo fátt eitt sé nefnt. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára og standa yfir milli 9 og 12. Einnig er boðið upp á gæslu fyrir krakkana milli kl. 8 og 9. Fyrsta námskeiðið hefst eins og áður segir 1. júní en það síðasta hefst 9. ágúst.
Þessi námskeið hjá Sindra hafa í gegnum tíðina verið vel sótt og mikil ánægja verið með þetta þarfa framtak og það sem er mest um vert er að krakkarnir hafa verið ánægð og skemmt sér vel. Leiðbeinendur í sumar eru Sindri Ragnarsson, Gísli Örn Reynisson og Jóna Benný Kristjánsdóttir





Skrifa athugasemd