Maí
Seyðisfjörður
Seyðisfjörður

27.05.2004 Maí

Ein stærsta sýning ársins á Austurlandi

Sýningin Austurland 2000 fer fram dagana 10. – 13. júní n.k. á Egilsstöðum, nánar tiltekið í Íþróttamiðstöðinni. Á sýningunni munu 120 einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir kynna starfssemi sína. Búist er við um 8 þúsund gestum á sýninguna og þeirra á meðal eru forseti Íslands og forsetafrú, alþingismenn Norðausturkjördæmis, ráðherrar, forystumenn ýmissa hagsmunasamtaka á Íslandi, sveitarstjórnarmenn á Austurlandi og fleiri. Mikil samstaða er á meðal Austfirðinga um að gera sýningardagana ógleymanlega. Fjöldi viðburða verður í fjórðungnum þá daga sem sýningin stendur yfir, dansleikir, sýningar o.fl. Sérstök aðstaða verður fyrir börn og skemmtileg leiktæki verða sett upp á sýningarsvæðinu.

Opnunartími sýningarinnar verður sem hér segir:
Fimmtudagur 10. júní, kl. 17-20
Föstudagur 11. júní, kl. 13-20
Laugardagur 12. júní, kl. 11-19
Sunnudagur, 13. júní, kl. 11-19

Verð aðgöngumiða er kr. 500 fyrir 12 ára og eldri, en ókeypis er fyrir börn yngri en 12 ára.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica