Snjóflóð féll nálægt gönguleið
Snjóflóð féllu skammt frá gönguleiðinni upp á Hvannadalshnúk sl. sunnudag. Einar Sigurðsson fjallaleiðsögumaður á Hofsnesi í Öræfum var á toppi Hvannadalshnúks með níu manna ferðahóp ásamt öðrum leiðsögumanni. Við heyrðum allt í einu miklar drunur og sáum að snjóflóð hafði farið af stað stutt frá gönguleið okkar upp á Hnúkinn og sáum hvar það hafði farið hlíðina sagði Einar. Ég er búinn að fara þarna um með fólk sl. 10 ár og hef aldrei fyrr séð snjóflóð falla á þessum slóðum. Þetta var mjög nálægt uppgöngu á Hnúkinn þar sem flestir fara upp. Hallinn er ívið brattari þar sem flóðið fór af stað en hluti flóðsins fór úr sama halla og við vorum að ganga upp. Það er því alveg fræðilegur möguleiki á að snjórinn fari af stað þegar menn eru að ganga upp hlíðina. Þetta er sá tími sem helst er hætta á að flóð komist á stað þegar kalt er um morguninn og svo kemur logn og hiti.
Þar sem flóðið kom niður var um 50 m í slóðina okkar en uppi í brattanum sjálfum var flóðið um 200 m frá slóðinni. Maður bara hrökk við þegar drunurnar komu og ég hef alltaf haldið að þetta svæði væri öruggt og ekki snjóflóðahætta og þarna vorum við á Hnappaleiðinni sem ég hef alltaf talið örugga, en þetta sýnir að maður veit aldrei á hverju er von sagði Einar.
Mikill snjór er núna á jöklinum og þegar rigningar eru á lálendinu er snjókoma uppi á jökli og sagði Einar að það gæti haldist fram eftir júnímánuði. Einar segir að Virkisjökuls-leiðin upp á Hvannadalshnúk sé mjög hættuleg og ættu þeir sem ætla á jökulinn á næstunni að kynna sér vel hvar öruggast er að fara.
Á myndinnis sést Bjarki Kárason leiðsögumaður hjá Öræfaferðum við gönguslóðina (Mynd Einar Sig.)




Skrifa athugasemd