Góð mæting á Hestadaginn
Firmakeppni Hestamannafélagsins Hornfirðings fór fram í sl fimmtudag, uppstigningardag við Stekkhól. Ekki viðraði vel og á tímabili leit út fyrir að ekki yrði hægt að halda mótið og hestadag fjölskyldunnar (sem ákveðið var að halda fyrir mótið), vegna mikillar snjókomu sem nær eingöngu var á og við völlinn og var á tímabili nánast ófært inn á völlinn. Ekki létu menn þetta á sig fá og var góð mæting á hestadaginn og voru hátt í 30 börn sem skelltu sér á hestbak og skoðuðu hesthús ofl.
Firmakeppninn hófst svo kl. 16:00 og var þá snjórinn nánast allveg tekinn upp og skollið á þetta fína sumarveður.
Góð þátttaka var í flestum flokkum nema unglingaflokk þar sem einungis einn knapi mætti.
Úrslit urðu sem hér segir
Barnaflokkur:
1. Ellert Máni Eyjólfsson og Tímon fyrir Þrastarhól..
2. Selma Lind Jónsdóttir og Bangsi fyrir Hótel Höfn.
3. Kristján Orri Arnason og Sær fyrir Hafnarapótek.
Unglingaflokkur
1. Helga Gísladóttir og Pjakkur fyrir Sparisjóð Hornafjarðar.
Kvennaflokkur
1. Jónína Grímsdóttir og Vinur fyrir Lækjarhúsabúið.
2. Jóna Stína Bjarnadóttir og Fálki fyrir Hestaflutninga Guðbrandar Óla.
3. Melrós Eysteinssdóttir og Skúmur fyrir Útreiðarfélagið Glófaxa.
Karlaflokkur
1. Kristinn Pétursson og Nökkvi fyrir Olís.
2. Jón Finnsson og Tangó fyrir Reiðskóla og Tamningarstöðina Dynjanda.
3. Kristján V. Björgvinsson og Hrímkatla fyrir Skeggey ehf.
Opinn flokkur
1. Pálmi Guðmundsson og Baun fyrir Útreiðarfélagið Glódísirnar.
2. Kristján V. Björgvinsson og Krummi fyrir Foss ehf.
3. Hanny Heiler og Muska fyrir Litla – Horn ehf.
Það var samdóma álit dómaranna, Grétars Más, Bía á Gerði og Bjössa Þorsteinss. að menn hefðu almennt verið vel ríðandi en heldur fannst þeim þó konurnar bera af.
Hestamannafélagið Hornfirðingur þakkar öllum þeim sem styrktu mótið kærlega fyrir.





Skrifa athugasemd