Maí
Einbreiðum brúm fækkar í Öræfum
Undanfarið hefur verið unnið að lagfæringu einbreiðra brúa í Öræfum. Brúarvinnuflokkur Sveins Þórðarsonar í Vík hefur verið að setja ný brúargólf á Skaftafellsá, Svínafellsá,Virkisá, Gljúfurá, Hólá og Stigá og er því verki að verða lokið. Suðurverk ehf. lauk um síðustu helgi að setja hólk í Heiðarlækinn sem er spölkorn sunnan við vegamótin í Skaftafell og með þeirri framkvæmd hvarf ein af mörgum einbreiðum brúm í Öræfum.
Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að vegaframkvæmdum í Öræfum verði væntanlega lokið fyrir Hvítasunnu.





Skrifa athugasemd