Ferðalangar farnir að tylla sér á tjaldsvæðið
Sumarið er komið og fyrstu ferðalangarnir farnir að tylla sér niður á tjaldsvæðið á Hornafirði. Ekki þurfa ferðalangar að kvarta undan veðráttunni þessa dagana og margt sem bendir til þess að blíðan haldist næstu dagana. Þjónustumiðstöð SKG sér um rekstur tjaldstæðisins en það eru hjónin Hugi Einarsson og Sigríður Kapitola Guðrúnardóttir sem eiga og reka það fyrirtæki. Hugi sagði að þetta væri fjórða sumarið sem þau væru með tjaldstæðið og að öllu óbreyttu yrðu þau þarna næstu þrjú árin. Í nótt voru 10 manns sem gistu tjaldstæðið og þrír að auki gistu í smáhýsunum. Þetta var fjölþjóðlegur hópur sagði Hugi, 4 Þjóðverjar, 4 Finnar, 2 Íslendingar og 3 Danir.
Um áframhaldandi framkvæmdir á tjaldsvæðinu sagði Hugi að stefnt væri að því að halda áfram að slétta svæðið líkt og gert var s.l. sumar enda munar miklu um stallana sem þá voru gerðir.





Skrifa athugasemd