Maí
Úr leik yngri flokka
Úr leik yngri flokka

25.05.2004 Maí

Neisti á toppnum í 3. deild karla D riðill

Þá er boltinn í þriðjudeild karla D riðils farinn að rúlla. Fyrstu umferð lauk í gær en sjö lið leika í riðlinum þannig að eitt lið situr hjá í hverri umferð og kom það í hlut okkar manna að þessu sinni. Í fyrstu umferðinni fengu Neisti, Einherja í heimsókn og lauk þeim leik með góðum 3 – 0 sigra Neista. Höttur tók á móti Leikni á Eiðavöllum og unnu Leiknismenn leikinn 2 – 0 og skoraði Daði Már Steinsson bæði mörkin. Síðasti leikurinn var viðureign Fjarðarbyggðar og Hugins og fór sá leikur fram á Neskaupstaðarvelli. Huginn vann þann leik 3 – 0 og skoraði Andri Bergmann Þórhallsson öll mörkin. Staðan í riðlinum eftir fyrstu umferð er því þannig að Neisti, Huginn og Leiknir eru með þrjú stig en önnur lið eru án stiga.

Önnur umferð riðilsins verður leikinn n.k. föstudag og þá etja okkar menn kappi við Einherja og fer sá leikur fram á Vopnafirði. Neisti fær Hattarmenn í heimsókn og Leiknir tekur á móti Fjarðarbyggð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica