Maí
Halldór, Ragnar og Freyja ásamt tíkinni Trítlu við slökkvibifreiðina
Halldór, Ragnar og Freyja ásamt tíkinni Trítlu við slökkvibifreiðina

25.05.2004 Maí

Slökkvibifreið í háar Hæðir

Tekist hefur að aka slökkvibifreið Öræfinga upp í háar Hæðir ( í Skaftafelli). Upp að húsinu á Hæðum er vegurinn mjór, krappar beygjur, brattur og erfiður stórum bílum. Þessi tilraun tókst með ágætum, enda er Halldór Þorsteinsson í Svínafelli sem ók bílnum afburða bílstjóri, og niður komst hann aftur heill á húfi. Að sögn Ragnars Frank þjóðgarðsvarðar og ábúanda á Hæðum, líst Halldóri ekki á að aka slökkvibílnum þarna niður brekkuna að vetri til ef hálka eða snjór væri.
Þessi prufutúr á bílnum var farin að beiðni Steinþórs Hafsteinssonar slökkviliðsstjóra til að kanna hvort þessi stóri bíll með 12 tonnum af vatni kæmist að bæjunum í Skaftafellsbrekkum ef á þyrfti að halda vegna eldsvoða.

Hæðir er vestasti bærinn í Öræfasveit og er í 200m hæð yfir sjávarmáli, stendur hæðst byggðra býla í Austur-Skaftafellssýslu. Neðar í brekkunni er Bölti þar sem rekin er ferðaþjónusta yfir sumarið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica