Maí
Frá Hornafjarðarflugvelli
Frá Hornafjarðarflugvelli

24.05.2004 Maí

Sumaráætlun Íslandsflugs tekur gildi í dag

Í dag tekur gildi sumaráætlun Íslandsflugs til Hornafjarðar. Sumaráætlunin gildir frá 24. maí til 31. ágúst. Fjóra daga í viku verður boðið upp á tvö flug á dag, eitt flug verður á sunnudögum en ekkert verður flogið til Hornafjarðar á þriðjudögum og laugardögum. Þeir dagar sem flogið verður tvisvar á dag eru mánudagar, miðvikudagar, fimmtudagar og föstudagar. Fyrra flugið þessa daga er með brottför frá Reykjavík kl. 8:15 og til baka frá Höfn kl. 9:45. Síðara flugið er með brottför frá Reykjavík kl. 16:15 og frá Höfn kl. 17:45. Á sunnudögum verður flogið frá Reykjavík kl. 13:45 og til baka frá Höfn kl. 15:15.

Íslandsflug var stofnað árið 1991 og innanlands er félagið með áætlunarflug til Vestmannaeyja, Hornafjarðar, Sauðárkróks, Bíldudals og Gjögurs og sinnir að auki sjúkraflugi.

Sjá nánar áætlun

 

 


 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica