Maí
Útskrift hjá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu
Föstudaginn 22. maí fór fram útskrift í Framhaldskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Þetta er í 13. skiptið sem stúdentar eru útskrifaðir frá skólanum. Að þessu sinni útskrifuðust 6 stúdentar og einn sjúkraliði. Eftirtaldir nemendur luku stúdentsprófi: Birna Þrúður Sigurbjörnsdóttir, Bryndís Björk Hólmarsdóttir, Eva Lind Björnsdóttir, Ingibjörg Zophoníasdóttir, Sigursteinn Haukur Reynisson og Þórey Harpa Þorbergsdóttir. Auk þess lauk Valgerður Hanna Úlfarsdóttir sjúkraliðabraut. Dúx var Sigursteinn Haukur Reynisson.
Auk þess luku 9 nemendur almennri braut, en nýtt skipulag var á henni í vetur. Þetta kemur fram á vef skólans fas.is





Skrifa athugasemd