Maí
Allt tilbúið til brottfarar
Allt tilbúið til brottfarar

24.05.2004 Maí

Krakkar í Hafnarskóla á leið til Vestmannaeyja

Klukkan 5:45 í morgun lagði 7. bekkur í Hafnarskóla af stað í hina árlegu Vestmanneyjaferð skólans. Það var góður hópur af mjög spenntum börnum sem kom sér fyrir í rútunni hjá Sumarliða tilbúin að takast á við ævintýri næstu daga. Leiðin liggur nú til Þorlákshafnar þar sem Herjólfur verður tekin kl. 11:00. Í Vestmannaeyjum verður hópurinn í umsjá Ferðaþjónustunnar Viking tours og mun m.a. verða farið í bátsferð, söfn bæjarins skoðuð, skotist í sund, ekið um eyjuna og sprangað. Ágætisveður var í Vestmannaeyjum kl. 6:00 í morgun, logn, léttskýjað og hiti 8,0°. Veðurspá fyrir næsta sólarhring gerir ráð fyrir hægri norðlægri átt og léttskýjuðu í dag en suðlægari átt á morgun og þykknar upp. Hiti 7 – 12 stig.

Hópurinn kemur heim á miðvikudagskvöld og verður stoppað á völdum stöðum á leiðinni. Fyrsti áfangastaðurinn á heimleiðinni verður Selfoss þar sem farið verður á KFC og í sund.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica