Maí
Við höfnina
Við höfnina
Akurey SF52 (úr myndasafni)

21.05.2004 Maí

Alltaf eitthvað í gangi á Hornafirði

Hornfirðingum á ekki að þurfa að leiðast um þessa helgi frekar en flestar helgir ársins. Í dag eru skólaslit Tónskólans í Austur-Skaftafellssýslu og verða þeir haldnir í Hafnarkirkju kl. 17:30 og eru allir velkomnir til að hlíða á ljúfa tóna nemenda.
Stærsti viðburður helgarinnar í listalífinu er án efa frumflutningur á Íslandi á “Skáldið og Sekkjapípuleikarinn” sem er nýjasta afurð Nóbelsverðlaunahafans Seamusar Heaneys og hins virta írska tónlistarmanns Liams O’;Flynn. Dagskráin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og verður flutt í Nýheimum á laugardagskvöld kl. 21:00.

Á morgun kl. 9:00 er fyrsta golfmót sumarsins og auðvitað fjölmenna kylfingar þangað og 14:00 á morgun er svo útskrift nemenda í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu og fara þeir fram í Nýheimum

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica