Maí
Góð sveifla á Silfurnesvelli
Góð sveifla á Silfurnesvelli

21.05.2004 Maí

Golfvertíðin að byrja

Nú styttist í að golfvertíðin byrji. Á morgun laugardag verður haldið fyrsta golfmót sumarsins og hefst það kl. 9:00. Margir glæsilegir vinningar verða í boði og er það verslunin Lónið sem gefur vinningana. Í sumar verður sú nýbreytni tekin upp hjá Golfklúbbi Hornafjarðar að spiluð verður mótaröð á miðvikudögum frá 26. maí til 30. júní, alls sex skipti. Mótafyrirkomulag verður þannig að spilarar þurfa að leika lágmark fjóra daga af þessum sex enda gilda fjórir bestu dagarnir. Spila má hvenær sem er yfir daginn, en þó verða tveir að spila saman og skila þarf korti í skála strax eftir leik. Þátttökugjald er kr. 2.000 sem skilast með fyrsta skorkorti. Glæsileg verðlaun verða í boði og er það Golfverslunin í Dalshrauni, Hafnarfirði sem styrkir þessa mótaröð.

Mót sumarsins verða með hefðbundnu snið og má nefna Sparisjóðsmótið 5. júní, Hafnar Apóteksmótið 17. júní, Jónsmessumót 25. júní, Humarhátíðarmót 3. júlí, Opin Kerfi – mót 10. júlí, Meistaramót 12. júlí, KASK bikar 7. ágúst, Kvennamót 14. ágúst og Hótel Hafnarmótið 21. ágúst.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica