Tíu smáhýsi til viðbótar í byrjun júní
Þeir eru einbeittir félagarnir Magnús og Jón Stefán Náttbólsmenn þar sem þeir eru að dytta að húsunum við Tjaldsvæðið og gera þau klár áður en ferðatíminn byrjar. Á myndina vantar Gústa Tobba sem var með pensilinn á lofti við eitt af húsunum. Nú líður að því að þeir geti farið að setja upp tíu smáhýsi til viðbótar en þau munu koma fyrir aftan þau sem fyrir eru. Reiknað er með að uppsetning þeirra geti hafist í byrjun júní en þá er tími auglýsingar um nýtt deiliskipulag liðinn og hægt að hefjast handa við uppsetningu húsanna.
Þau smáhýsi sem fyrir eru voru flest tekin í notkun í byrjun júlí í fyrra og komu mjög vel út í nýtingu og voru gestir almennt mjög ánægðir með húsin sem eru með svefnpláss fyrir 6 manns ásamt eldunaraðstaða og hiti.





Skrifa athugasemd