Sól í Lóni, snjór í Nesjum
Uppstigningardagurinn bíður okkur upp á nokkuð óvenjulegt veður eða sýnishorn af nokkrum veðurbrigðum í nágrenni Hafnar, á Mýrum er rjóma blíða og trjávöxtur í fullum gangi, í Nesjum var allt hulið snjó um tíma og náði snjórinn niður Skarðsdal í Lóni og þegar komið var fram hjá Þorgeirsstöðum á austurleið þá var eins og við manninn mælt, sól og flott veður, hitastig um 6-8 gráður. Kjörið fyrir þá athafnamenn sem nú standa í girðingarframkvæmdum við nýju sumarbústaðarlóðirnar í Stafafellsfjöllum.
Spáð er hægri vestlægri átt og þurrt að mestu. Suðvestan 3-8 síðdegis og dálítil rigning eða súld í kvöld, einkum vestan til en skúrir á morgun. Hiti 4 til 9 stig




Skrifa athugasemd