Gerard Butler í hlutverki Bjólfs
Búið er að finna leikarann sem tekur að sér hlutverki Bjólfs í kvikmyndinni Bjólfskviðu sem tekin verður upp hér í Sveitarfélaginu, það er skotinn Gerard Butler sem mun verða Bjólfur. Gerard er fæddur í Skotlandi en er af írskum ættum. Fyrsta myndin sem hann lék í var Mrs. Brown (1997) en það má segja að hann hafi byrjað feril sinn þegar hann lék í James Bond myndinni Tomorrow Never Dies (1997) og ári síðar í Tale of the Mummy. Gerard er meðal þeirra sem nefndir hafa verið sem arftakar Pierce Brosnan í hlutverk breska njósnarans James Bond.
Meðal annarra mynda sem Gerard hefur leikið í eru Drakula 2000, Reign of Fire, Lara Croft Tomb Raider: The Cradle of Life sem var framhald af Tomb Raider myndinni sem tekin var hér í Sveitarfélaginu að hluta til. Nýjast mynd sem Gerard lék í var Timeline sem nú er verið að sýna í kvikmyndahúsum hér á landi. Bjólfskviðu verður leikstýrt af Sturlu Gunnarssyni.





Skrifa athugasemd