Maí
Hjólað með mömmu
Hjólað með mömmu

19.05.2004 Maí

Hjólað í vinnuna á Hornafirði

Á mánudaginn var fyrsti keppnisdagur í “Hjólað í vinnuna” en keppnin stendur yfir frá 17. maí til 28. maí. Á fyrsta degi höfðu 110 fyrirtæki með 172 lið skráð sig til keppni og eru skráðir liðsmenn um 1.000. Samkvæmt stöðulista í gær var Sveitarfélagið Hornafjörður í 5. sæti af 20 sveitarfélögum, en fimm fyrirtæki eða stofnanir eru skráð til keppni á Hornafirði. Glæsilegir viðurkenningarskildir verða veittir fyrir þrjú efstu sætin í hverjum fyrirtækjaflokki. Nú er bara um að gera fyrir Hornfirsku fyrirtækin sem þátt taka í keppninni að taka vel á og skila mörgum kílómetrum í hús og allir hinir sem ekki eru skráðir til keppni sýna stuðninginn í verki og hjóla, labba eða skokka í vinnuna.

Svo er um að gera að nýta þá orku og þann kraft sem menn fá út úr þessu átaki til undirbúnings undir Kvennahlaupið sem verður 19. júní n.k.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica