Landsyn, norskt fyrirtæki með Hornfirskan bakgrunn
Hornfirsku hjónin Birna Ingólfsdóttir og Ófeigur Jóhannesson sem hafa búið undanfarin 6 ár í Noregi ásamt börnum sínum, hafa sett á fót fyrirtæki sem selja á Norðmönnum ferðir til Íslands. Birna mun sjá um daglegan rekstur fyrirtækisins en öll fjölskyldan mun koma að rekstrinum að einhverju leyti. Yfirbygging fyrirtækisins verður í algjöru lágmarki sagði Birna og við munum ekki vera með opna skrifstofu heldur munum við sjá um öll mál í gegnum síma eða tölvupóst. Við munum auðvitað gera Austur-Skaftafellssýslu hátt undir höfði enda þekkjum við best til í gömlu heimhögunum sagði Birna. Við ætlum líka að selja Íslendingum ferðir hingað til Noregs og við höfum verið svo heppin að fá pláss í nokkrar veiðiferðir í haust. Um er að ræða elgsveiði, fuglaveiði og dádýraveiði.Veiðitímabilið er í haust og er um að ræða veiðipakka með gistingu, og fullu fæði. Einnig ætlum við að reyna að lokka landann til að nýta sér hin frábæru skíðasvæði sem Noregur hefur upp á að bjóða auk almennra ferða allan ársins hring.
Birna stundar nú fjarnám við Háskólann í Stavanger í leiðsögn og þá með leiðsögn um Noreg sem aðalgrein. Ég hef unnið síðastliðin 5 ár við að selja ferðir um Noreg og þekki mig því orðið mjög vel í Noregi og því lítið mál að skipuleggja hópferðir ef fólk hefur áhuga á slíkum ferðum. Við munum líka verða með spennandi ferð í haust sem nánar verður kynnt á heimasíðunni okkar og þar má einnig nálgast allar upplýsingar og fræðast betur um starfssemina hjá okkur. Slóðin er www.landsyn.no





Skrifa athugasemd