Maí
Guðrún Ása og Helga Rún að skipuleggja vinnu sumarsins
Guðrún Ása og Helga Rún að skipuleggja vinnu sumarsins

18.05.2004 Maí

Allir skólakrakkar úr 8. - 10. bekk fá vinnu

Nú styttist í að vinnuskólinn á Höfn byrji og munu nemendur 8. bekkjar Heppuskóla mæta til vinnu 7. júní og 9. – 10. bekkur byrjar 10. júní. Guðrún Ása Jóhannsdóttir hefur verkstjórnina með höndum og aðstoðarverkstjóri er Helga Rún Guðjónsdóttir. Þetta er annað sumarið sem Guðrún Ása er verkstjóri og lætur hún vel af því starfi og segir að krakkarnir hafi verið rosalega góð í fyrra og alveg til fyrirmyndar og er viss um að eins verði það í sumar. Við Helga Rún erum að byrja í dag að undirbúa vinnuna, skipta í hópa og skipuleggja þetta segir Guðrún Ása. Flokksstjórarnir koma til vinnu á mánudaginn og þá förum við sem mætt erum að reita í beðum og undirbúa þau. Við fáum líka krakka úr framhaldsskólanum og þau verða í sláttuhópnum. Þegar krakkarnir byrja förum við í að snyrta og prýða bæinn, sá blómum, taka til og gera hann rosalega flottan.

Það fá allir skólakrakkar úr 8.-10. bekk vinnu, en þau eru eitthvað færri en í fyrra. Núna verður vinna hjá krökkunum úr 8. bekk hálfan daginn í átta vikur, var í fjórar vikur í fyrra. Eldri krakkarnir fá að vinna allan daginn í átta vikur. Guðrún Ása segir að sami háttur verði á í sumar með að slegnir verða blettir og garðar fyrir aldraða og öryrkja en því miður hefur ekki unnist tími til að hægt væri að taka að sér slátt fyrir almenning.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica