Maí
Seamusar Heaney og Liams O’Flynn
Seamus Heaney og Liam O’Flynn
Seamus Heaney og Liam O’Flynn

18.05.2004 Maí

Írsk stemning í Nýheimum

Laugardaginn 22. maí verður einn af dagskrárliðum Listahátíðar í Reykjavík frumfluttur í Nýheimum á Höfn í Hornafirði.
Þetta er dagskráin ”Skáldið og sekkjapípuleikarinn” sem er nýjasta afurð Nóbelsverðlaunahafans Seamusar Heaneys og hins virta írska tónlistarmanns Liams O’;Flynn sem leikur á hið sérstæða hljóðfæri Uilleann pipes eða “olnbogapípu”. Dagskráin, sem byggir á írskum þjóðlögum og textum og ljóðum Seamusar Heaneys, sem hann flytur sjálfur, hefst kl. 21:00, laugardaginn 22. maí. Til þess að skapa írska stemningu verður salnum í Nýheimum raðað upp eins og á kaffihúsi og að sjálfsögðu verða ekta írskar veitingar í boði.

Miðasala er hafin í síma 470 8050. Miðarnir rjúka út svo nú verða áhugasamir að taka upp tólið og tryggja sér sæti.
Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að hlýða á dagskrá sem hefur farið sigurför um heiminn.
Einnig er bent á fjölmarga aðra möguleika til afþreyingar og skemmtunar á Hornafirði, svo sem ferð á söguslóðir Þórbergs Þórðarsonar, jöklaferðir, veitingahús og margt fleira.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica