Maí
Gráspör sem sást á Hofi í Öræfum(mynd:Brynjúlfur Brynjólfsson)
Gráspör sem sást á Hofi í Öræfum(mynd:Brynjúlfur Brynjólfsson)

17.05.2004 Maí

Stofnun undirbúningsfélags um Fuglaathugunarstöð á Höfn

Miðvikudaginn 19.maí nk. verður haldinn stofnfundur undirbúningsfélags um Fuglaathugunarstöð á Höfn. Fundurinn verður í fundarsalnum í Nýheimum og hefst kl.17.00. Þau félög sem koma að stofnun þessa undirbúningsfélags eru: Félag fuglaáhugamanna á Hornafirði, Sveitarfélagið Hornafjörður, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Háskólasetrið á Hornafirði, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu og Frumkvöðlasetur Austurlands. Einnig verður Náttúrufræðistofnun Íslands boðið að vera aðili að undirbúningsfélaginu.
Almenningi, fyrirtækjum og stofnunum sem áhuga hafa á að gerast stofnaðilar verður gefinn kostur á því að skrá nafn sitt á lista sem mun liggja frammi á fundinum eða tilkynna aðild fyrir 30.júní nk.

Brynjúlfur Brynjólfsson fuglaáhugamaður segir að tilgangurinn með stofnun þessa undirbúningsfélags sé að fá sterka aðila til vinna að því að koma fuglaathugunarstöð á Höfn á laggirnar sem fyrst. Við fengum styrki frá Byggðastofnun og Menningarsjóði KASK, samtals 300 þúsund kr. til að koma þessu verkefni af stað og Frumkvöðlasetrið hefur líka styrkt okkur með því að veita okkur aðstöðu í Nýheimum.

Brynjúlfur segir að ekki hafi sést hér neinir alveg ókunnir fuglar í vor, bara þessir venjulegu flækingar, en fuglar komu heldur með fyrra móti í vor. Gæsirnar stoppuðu óvenju stutt í túnum bænda áður en þær héldu inn til varpstöðvanna og fregnir herma að heiðargæsirnar séu orpnar. Brynjólfur hefur einnig haft spurnir af því að einstaka fuglategund sé komin með unga.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica