Maí
Albert, Óli, Rúnar, Jóna og Hallgrímur en hann afhenti vinningana fyrir hönd Krónunnar
Albert, Óli, Rúnar, Jóna og Hallgrímur en hann afhenti vinningana fyrir hönd Krónunnar

17.05.2004 Maí

Sprenging í sölu getrauna

Tippstofa Sindra hefur nú verið starfrækt á annað ár í núverandi húsnæði að Hafnarbraut. Óhætt er að segja að með tilkomu aðstöðunnar við Hafnarbraut hafi orðið sprenging í sölu getrauna hjá félaginu. Á síðasta ári seldust 405.867 raðir merktar Sindra en til gamans má nefna að árið 2002 voru raðirnar 115.438 og árið 2001 seldust 47.959 raðir. Sá sem staðið hefur í eldlínunni fyrir Tippstofu Sindra er Gestur Halldórsson og hefur hann með fórnfúsu starfi lyft grettistaki í getraunasölunni og gert Sindrahúsið að góðum samkomustað tippara á laugardögum. Nú er nýlokið krónuleik hjá Tippstofunni og þar varð hlutskarpastur Ólafur Jónsson, í öðru sæti var Rúnar Gestsson, Albert Eymundsson varð í þriðja sæti og Jóna Jóhannesdóttir í því fjórða. Krónan gaf vinningana sem voru vöruúttektir í verslun Krónunnar.

Nýlokið er einnig hópkeppni vetrarins Gestur Halldórsson varð í fyrsta sæti, Jón Ingi Björnsson varð í öðru sæti og Sigurður Halldórsson í því þriðja. Það voru Grand Hótel og Hótel Höfn sem gáfu vinningana í vetrarleiknum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica