Maí
Unsteinn Þráinsson með kongó rósina (mynd:Björn Arnarson)
Unsteinn Þráinsson með kongó rósina (mynd:Björn Arnarson)
Unsteinn Þráinsson með kongó rósina (mynd:Björn Arnarson)

17.05.2004 Maí

Líður að lokum grásleppuvertíðar

Grásleppuvertíðin í Berufirði hefur gengið frekar illa í vetur og vor og mun minni veiði hefur verið miðað við s.l. ár. Tvær Hornfirskar trillur, Benni SF- 66 og Siggi Bessa SF- 97  hafa stundað grásleppuveiðar í Berufirði og Breiðdalsvík á þessari vertíð og að sögn Friðþórs Harðarsonar hafa veður verið með eindæmum leiðinleg og mikill munur á aflabrögðum milli ára. Við erum þrír á hvorum bát og megum því vera með 150, löng net. Aflanum er landað á Djúpavogi og fara hrognin beint í bíl til Reykjavíkur þar sem þau fara í vinnslu hjá Bakkavör. Í svona tíð eins verið hefur á þessari vertíð þá höfum við þurft að glíma mikið við “kongó rósina” en netin fyllast af þessum óþvera þegar sjó setur upp sagði Fiddi að lokum.


Veiðar á grásleppu má stunda frá 20. mars til 17. júní. Tveir bátar hafa verið á þorskanetum frá Djúpavogi í vetur en þeir hafa nú skipt yfir á snurvoð og færabátar eru byrjaðir að róa.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica