Maí
Eggjatökuferð í Ingólfshöfða maí 2004 ©RF
Eggjatökuferð í Ingólfshöfða maí 2004 ©RF

17.05.2004 Maí

Ingólfshöfði er friðlýstur

Til viðbótar við frétt um eggjatökuferð í Ingólfshöfða sem sagt var frá hér á vefnum er rétt að það komi fram að Ingólfshöfðasvæðið er friðlýst samkvæmt náttúruverndarlögum. Árið 1974 lögðu heimamenn það til að höfðinn yrði friðlýstur í minningu landnámsins og var það gert. Ákvæði friðlýsingarinnar voru þau að það sem heimamenn hefðu alltaf gert með höfðann gætu þeir stundað áfram, það er að beita sauðfé í höfðann, stunda eggjatöku, nýta reka o.s.frv. Hofsmenn eiga 2/5 af höfðanum og grasnytjar og kirkjujörðin Sandfell á 3/5 en Hofsmenn og einn bóndi í Svínafelli leigja jörðina af ríkinu og öðlast þann rétt sem henni tilheyrir. Öll eggjataka í höfðanum er því stranglega bönnuð öðrum en landeigendum.

Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli er þess fullviss að ekkert friðland á Íslandi sé jafn vel nýtt og Ingólfshöfði, fuglalíf er þar í miklum blóma og höfðinn er allur að gróa upp.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica