Útboð vegna stálþils á Krosseyjarbakka
Í gær voru opnuð tilboðið í stálþil vegna Krosseyjarbakka í Hornafjarðarhöfn. Tilboðin voru opnuð á sama tíma hjá á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar og skrifstofu Siglingastofnunar Íslands. Fimm tilboð bárust en kostnaðaráætlun hljóðar upp á kr. 48.381.630. Eftirfarandi fyrirtæki lögðu inn tilboð í verkið: Ísar ehf. kr. 30.952.000 sem er 63,9% af kostnaðaráætlun. Guðlaugur Einarsson ehf. kr. 41.550.000 sem er 85,5% af kostnaðaráætlun. Elinn ehf. kr. 42.238.490 sem er 87,3% af kostnaðaráætlun. Rósaberg ehf. kr. 48.468.680 sem er nánast samkvæmt kostnaðaráætlun og Sveinn Sighvatsson kr. 66.464.689 sem er 37,3% yfir kostnaðaráætlun.
Verkinu skal lokið fyrir 15. september og munu framkvæmdir því væntanlega hefjast í júní. Stálþil verður rekið niður utan við það sem fyrir er og með tilkomu þess verður viðlegudýpi átta metrar í stað sex metra eins og nú er.





Skrifa athugasemd