Fjárhagur USÚ traustur
Þing Ungmennasambandsins Úlfljóts í Austur-Skaftafellssýslu var haldið í Mánagarði sl. þriðjudag. 19 fulltrúar frá 5 aðildarfélögum sambandsins mættu á þingið. Gestur þingsins var Engilbert Olgeirsson stjórnarmaður í ÍSÍ. Fram kom á þinginu að fjárhagur sambandsins er traustur og raunar á það sama við um aðildarfélögin innan USÚ. Kjartan Hreinsson úr Hestamannafélaginu Hornfirðingi og Guðrún E. Þorsteinsdóttir Golfklúbbi Hornafjarðar voru endurkjörin í stjórn sambandsins. Hrefna Lúðvíksdóttir úr Umf. Sindra gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Ragnhildur Einarsdóttir úr Sindra kjörin ný í stjórnina.
Kjartan, sem hefur verið formaður sambandsins frá síðasta þingi, gaf það út á þinginu að hann óskaði ekki eftir því að starfa áfram sem formaður. Nýkjörin stjórn mun skipta með sér verkum á fyrsta fundi eftir þing. Fram kom á þinginu að USÚ hefur sent inn umsókn um að halda Unglingalandsmót UMFÍ árið 2006.





Skrifa athugasemd