Maí
Veðrið á Höfn 14. maí kl. 07:47
Veðrið á Höfn 14. maí kl. 07:47

14.05.2004 Maí

Árlegur hreinsunardagur á Höfn og í Nesjum

Á jafn flottum degi og nú er mætti halda að sumarið væri komið er gott að fara að huga að sínu nánasta umhverfi. Hvað er betra eftir langan vinnudag en að skella sér í garðinn og klára vorverkin. Á laugardaginn verður hinn árlegi hreinsunardagur á Höfn og í Nesjum og þá eru allir íbúar hvattir til að laga til í görðum sínum, og getur fólk skilið garðaúrgang eftir út við götu og munu starfsmenn bæjarins síðan safna garðaúrganginum saman. Eins og staðan er í kortunum um þessar mundir kemur kannski ekki til með að viðra vel til garðvinnu um helgina. En hver veit, kannski hafa veðurfræðingarnir rangt fyrir sér svona einu sinni.


Gróðurmold geta öflugir garðvinnumenn nálgast norðan við gatnamót Fákaleiru og Álaleiru samkvæmt upplýsingum frá sveitarfélaginu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica