Óvænt heimsókn í Nesjaskóla
Krakkarnir í 1.bekk í Nesjaskóla fengu óvænta heimsókn í skólann í morgun, þar voru á ferð nokkrir félagar í Kiwanisklúbbnum Ós. Erindið sem þeir áttu við krakkana var að færa þeim vandaða reiðhjólahjálma sem eru gjöf frá Kiwanis, Eimskip og Flytjanda. Þegar krakkarnir voru búnir að setja upp hjálmana voru þau minnt á að það ætti alltaf að vera með þá þegar farið væri út að hjóla og var það samþykkt samstundis og lofað að gleyma því ekki..
Næsta laugardag, þann 15.maí kl. 14:00 er Hjólreiðadagurinn og þá er skorað á alla krakka á staðnum að mæta við Heppuskóla og auðvitað með hjólin og hjálmana. Það eru Kiwanis, Eimskip og Flytjandi sem standa fyrir hjólreiðadeginum um allt land. Sitthvað verður til gamans gert og krakkarnir fá tækifæri til að leysa nokkrar þrautir og geta þannig tekið þátt í skemmtilegum leik og átt möguleika á góðum vinningi.
Dregið verður úr þátttökuseðlum 22.maí og hljóta 10 heppnir krakkar verðlaun, en verðlaunin eru 5 reiðhjól og 5 fjölskyldumáltíðir fyrir fjóra frá Hard Rock.





Skrifa athugasemd