Álfasala SÁÁ
Hin árlega Álfasala SÁÁ fer fram dagana 13. – 16. maí. Á Hornafirði mun 4. flokkur karla hjá Sindra sjá um söluna og renna sölulaunin í ferðasjóð strákanna fyrir væntanlega Færeyjaferð sem farin verður í byrjun júní. Hornfirsk heimili eiga því von á að ungir drengir banki upp á hjá þeim og bjóði álfinn til sölu næstu daga. Auðvitað vonast strákarnir eftir því að viðtökur verði góðar og fólk sjái sér fært að styrkja gott málefni um leið og það styrkir ferðasjóð 4. flokks.
Allur ágóðinn af Álfasölunni fer til að styrkja unglingadeild SÁÁ. Á síðasta ári komu tæplega 400 ungmenni á aldrinum 14 – 20 ára í meðferð hjá SÁÁ. Sérstök unglingadeild hefur verið rekin á Vogi frá því í ársbyrjun 2000. Til viðbótar býður SÁÁ unga fólinu upp á félagslega samveru að lokinni meðferð. Þannig gengur þeim betur að halda sig frá vímuefnum.





Skrifa athugasemd