Maí
Sigrún Kapitola og Gunnlaugur Bragi í Smáralind
Sigrún Kapitola og Gunnlaugur Bragi í Smáralind

12.05.2004 Maí

Austur-Skaftfellingar á Ferðatorgi í Smáralind

Um síðustu helgi stormuðu Austur-Skaftfellskir ferðafrömuður í Smáralind og tóku þátt í því sem ber nafnið Ferðatorg, en tilgangurinn með Ferðatorgi er að kynna Ísland fyrir Íslendingum. Austur-Skaftfellingar voru í bás með austurlandi og var yfirskriftin “Austurlandsfjórðungur í fókus”. Kynningarbásinn var mjög glæsilegur en þar var m.a. myndasýning á tveim skjáum, kar úr plexigleri sem í var ís úr Jökulsárlóni og lifandi humar. Humarinn vakti mikla hrifningu og undrun hjá fólki á öllum aldri og kom á óvart hvað margir voru hissa þegar við sagt var hvaðan humarinn kæmi og áttu sumir erfitt með að trúa því að svo stór humar veiddist við Íslandstrendur. Mikil skemmtidagskrá var í gangi alla dagana og fyrir hönd okkar Austur-Skaftfellinga kom fram ungur harmonikkuleikari, Gunnlaugur Bragi og stóð hann sig mjög vel.

Sigrún Kapitola sem var á sýningunni fyrir hönd Austur-Skaftafellssýslu sagðist vera ánægð með helgina. Mjög góð mæting var á sunnudeginum, en heldur síðri hina dagana. Kynningin okkar vakti alla veganna athygli og þá er tilganginum náð. Auk Sigrúnar Kapitolu voru á sýningunni fyrir hönd Austur-Skaftafellssýslu, Brynjúlfur Brynjólfsson, Gunnlaugur Bragi og Stella Hrönn starfsmaður þjóðgarðsins í Skaftafelli.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica