Öræfingar í eggjatöku
Árleg ferð Öræfinga út í Ingólfshöfða til eggjatöku, fór fram sunnudaginn 9.maí. Veðrið var frábært, fuglalíf sjaldan betra og mikið af langvíueggjum Alls voru týnd um 1800 egg og er það helmingi betri fengur en á síðasta ári. Ragnar Frank Þjóðgarðsvörður í Skaftafelli var með í eggjatökuferðinni og segir hann að ferðin hafi verið söguleg og má segja að hún hafi markað tímamót nú á þessum jafnréttis tímum, því nú sigu tveir kvenmenn niður í bjargið, og það er örugglega í fyrsta sinn sem að finnsk kona hefur sigið í Ingólfshöfða, en það var Hanna vinnukona frá Svínafelli. Elsti maðurinn í hópnum Magnús Lárusson, frá Svínafelli, taldi þó að það væri nú ekki öruggt, því Ingólfur Arnarson, landnámsmaður hefði örugglega haft með sér duglega finnska konu þegar hann kom í land 874.
Helstu sigmenn eru Ari Magnússon frá Hofi, Jóhann Þorsteinsson í Svínafelli og Einar Sigurðsson á Hofsnesi. Skipting eggja er eftir gamalli hefð, og skiptist hluturinn í 9 parta: Hofsmenn fá 3 hluti, einn hluti á Hofsnes, einn á Svínafell, tveir á sigmenn og svo landhlutur, sá sem átti togið fékk einn hlut. Skaftafellsbóndinn fékk nóg af eggjum, þó hann ætti engan hlut, sama var um aðra aðila sem tóku þátt í þessari hollu útivist.
Langvían verpir síðan aftur, svo eggjatakan hefur engin áhrif á stofn Langvíunnar í Ingólfshöfða. Þar sem eggin eru tekin úr hreiðrum seinkar varpi um 12 daga.
Sjá myndasafn
.jpg)




Skrifa athugasemd