Maí
Magnús Skarphéðinsson
Magnús Skarphéðinsson

11.05.2004 Maí

Dulræn mál og líf eftir dauðann

Í síðustu viku var haldinn fyrirlestur um dulræn málefni, líf eftir dauðann og ýmislegt fleira tengt þeim málum. Gestur fundarins var Magnús H. Skarphéðinsson skólastjóri og kom hann til Hafnar á vegum Sálarrannsóknarfélagsins Stjörnunnar sem var stofnuð hér fyrir nokkrum árum. Tilgangur félagsins var að efla og þroska þekkingu fólks sem hefur áhuga á dulrænum og andlegum málefnum og hefja nýtt starfsár á komandi hausti. Fyrirlesturinn var hugsaður sem slíkur, að fá fólk til að koma Stjörnunni aftur upp á himininn.

Stjarnan var með öfluga starfsemi um árabil og voru haldin fjölmörg námskeið og var félagið einnig með heilunarkvöld þar sem öllum var boðið að koma og fá heilun. Bókakvöld og margt fleira skemmtilegt var brallað og fjölmargir miðlar komu á vegum félagsins til Hafnar.

Sjá upplýsingar um Sálarrannsóknarfélagið Stjörnuna

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica