Maí
Reynir og Svandís kaupa Ásgarð
Hjónin Reynir Arnarson og Svandís Guðný Bogadóttir gengu um helgina frá kaupum á Verðbúðum ehf., seljandi var útgerðarfyrirtækið Skinney-Þinganes. Verðbúðir ehf. á og rekur gistiheimilið Ásgarð sem staðsett er við höfnina á Hornafirði. Að sögn þeirra hjóna verður reksturinn með mjög svipuðum hætti og hann hefur verið síðast liðin tvö ár, hvað svo sem framtíðin ber í skauti sér. Þetta verður spennandi verkefni að takast á við og við hlökkum til sumarsins. Vel lítur út með bókanir í sumar og kemur fyrsti hópurinn í Ásgarð 20. maí.
Það er svo um miðjan júní sem aðal ferðamanna tíminn hefst og þá verður nóg að gera sögðu þau Reynir og Svandís lokum.





Skrifa athugasemd