Börn þurfa hreyfingu og mikið af henni
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin hefur útnefnt 10. maí sem alþjóðadag hreyfingar. Í ár er athyglinni einkum beint að börnum en þeim stafar orðin hætta af hreyfingarleysi, kyrrsetu og röngu mataræði. Nemendur og kennarar í Nesjaskóla ætla að vera þátttakendur í þessum degi og byrjuðu skólann í dag á því að fara í góðan göngutúr. Gengið var að Stekkhól þar sem farið var í leiki og síðan gengið aftur heim í skóla. Svo skemmtilega vill til að þennan alþjóðadag hreyfingar ber upp á útileikjaátakið sem er í gangi í skólanum núna í maímánuði. Nemendur í heilsuskólanum Nesjaskóla verða því einstaklega virkir við hreyfingu og heilsueflingu þennan dag.
Útileikjaátakið hjá Nesjaskóla byggist á því að í löngufrímínútunum setja kennarar af stað einn ákveðin leik og hafa krakkarnir fjölmennt til þátttöku og hafa síðan mörg hver haldið viðkomandi leik áfram það sem eftir er af frímínútum dagsins. Það er ósk kennaranna að börnin taki leikina með sér heim í hverfið sitt og verði nú dugleg að leika sér þar líka í frítíma sínum. Börn þurfa hreyfingu og mikið af henni, hvetjum þau til dáða.





Skrifa athugasemd