Maí
Jón Ólafsson tónlistarmaður, hress að vanda
Jón Ólafsson tónlistarmaður, hress að vanda
Jón Ólafsson tónlistarmaður, hress að vanda

10.05.2004 Maí

Jón Ólafsson í Nýheimum

Jón Ólafsson mun halda tónleika í Nýheimum n.k. fimmtudag þar sem hann mun kynna nýútkomna sólóplötu sína sem ber hið fallega nafn “Jón Ólafsson” Jón semur öll lögin sjálfur en textarnir eru eftir Hallgrím Helgason, Ólaf Hauk Símonarson, Kristján Hreinsson, Stein Steinarr og sjálfur semur Jón einn textann. Jón hefur lengi verið að í tónlistinni og meðal kunnra hljómsveita sem hann hefur leikið með má nefna Sálina, Possibillies, Bítlavinafélagið og Nýdönsk. Jón hefur víða komið við í tónlistarlífi landans bæði sem hljóðfæraleikari og upptökustjóri auk þess að vera tónlistarstjóri við margar sýningar í Íslenskum leikhúsum. Á tónleikunum í Nýheimum mun Jón kynna sína fyrstu sólóplötu í tali og tónum og eflaust mun eitthvað af eldri efni fá að fljóta með.

Jón er eins og alþjóð veit stjórnandi hins geysivinsæla sjónvarpsþáttar “Af fingrum fram” og ættu aðdáendur þess þáttar ekki að láta happ úr hendi sleppa og mæta í Nýheima og hlíða á tónlistarmanninn Jón Ólafsson, sem einnig ber titilinn kynþokkafyllsti karlmaður Íslands samkvæmt kosningu hlustenda Rásar 2.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica