Maí
Bæjarstjórarnir Sigurður Geirdal og Kristján Þór ásamt Ara Þorsteinssyni
Bæjarstjórarnir Sigurður Geirdal og Kristján Þór ásamt Ara Þorsteinssyni

08.05.2004 Maí

Tóku með sér humar til Akureyrar og Kópavogs

Bæjarstjórarnir Kristján Þór Júlíusson og Sigurður Geirdal voru meðal þeirra bæjarstjóra sem komu við á Markaðstorginu á Höfn og keyptu sér hornfirskan gæða humar til að taka með sér heim eftir viðveruna á Hornafirði síðustu daga en þeir voru ásamt öðrum bæjarstjórum á landinu á árlegum fundi sem að þessu sinni var haldinn á Hótel Höfn. Bæjarstjórarnir hafa einnig nota þennan árlega fund til að kynna sér landið og það sem það hefur upp á að bjóða. Aðal verkefni þessa fundar var verkefnaflutningur frá ríki til sveitarfélaga og efling sveitarstjórnarstigsins og hentaði fundarstaðurinn mjög vel enda var Austur-Skaftafellssýsla var fyrsta héraðið sem sameinaðist í eitt sveitarfélag, Sveitarfélagið Hornafjörð sem hefur síðan tekið að sér fleiri verkefni frá ríkinu með þjónustusamningum en önnur sveitarfélög.

Bæjarstjórarnir voru fengu dæmigert hornfirskt veður og lýstu margir yfir því að ferðin hafi verið mjög árangursrík og skemmtileg enda fyrir utan fundarsetuna gerðu þeir sér margt til skemmtunar og var endað á dansleik sem fór fram á Hótel Höfn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica