Hreinsunardagur Hafnarskóla
Í dag fjölmenna nemendur Hafnarskóla ásamt kennurum sínum út á stræti og torg Hornafjarðar með svarta ruslapoka í hönd, því í dag er hinn árlegi hreinsunardagur skólans. Þá taka nemendur og kennarar höndum saman og hreinsa bæinn og er afraksturinn alltaf margir pokar fullir af rusli, sem hefur safnast saman á víðavangi yfir veturinn. Krakkarnir eru á ferðinni fram undir hádegi, en þá er boðið til grillveislu við Hafnarskóla og þar mætir foreldrafélagið og aðstoðar við grillið. Í grillveislunni taka krakkarnir svo hraustlega til matar síns, enda mikil orka búin að fara í erfiði morgunsins.
Krakkarnir fá fínt veður til ruslatínslu í dag, hægur vindur, þokkalegur hiti og þurrt, getur ekki verið mikið betra.





Skrifa athugasemd