Maí
Æft á fullum krafti
Æft á fullum krafti

07.05.2004 Maí

Styttist í Íslandsmótið í knattspyrnu

Nú styttist óðum í að boltinn fari að rúlla fyrir alvöru og hefst keppni í 3. deild karla 23. maí. Lið Sindra í meistaraflokki karla hefur misst tvo reynda heimamenn frá sér, Halldór Steinar Kristjánsson sem gekk til liðs við ÍR og Júlíus Frey Valgeirsson sem gengin er í raðir HK. Einnig er Kjartan Páll Þórarinsson markvörður búin að flytja sig um set og leikur með ÍR í sumar. Einn nýr leikmaður er gengin í raðir Sindra, Nezir Ohran markvörður frá Bosníu. Það hefur auðvitað ekki farið framhjá neinum að Sindra mun spila í 3. deild þetta árið og því munu Hornfirskir knattspyrnumenn endurnýja kynni sín við Huginn, Fjarðarbyggð, Hött, Leikni, Neista og Einherja en það eru andstæðingar sumarsins í 3. deild karla. Og eins og góður maður sagði “Hin gömlu kynni gleymast ei”

Töluverð hreyfing hefur verið á leikmönnum liðanna fyrir austan og trúlega færist enn meira fjör í leikmannamarkaðinn næstu vikurnar. Tvö lið hafa misst menn og enga fengið enn sem komið er í staðinn, samkvæmt upplýsingum frá KSÍ, en það eru Einherji sem misst hefur tvo leikmenn og Neisti sem misst hefur fjóra leikmenn. Mesta hreyfing á leikmönnum er hjá Hetti en þar eru skráðir átta nýir leikmenn frá síðasta tímabili og átta hafa farið.

Gengi liðanna í Deildarbikarkeppni KSÍ hefur verið misjafnt. Fjarðarbyggð og Höttur léku í D riðli og endaði Fjarðarbyggð í öðru sæti en Höttur lenti í neðsta sæti riðilsins. Huginn lék í C riðli og endaði þar í fjórða sæti. Sindri lék í A riðli og endaði í neðsta sæti með aðeins eitt jafntefli.

Hvaða lið það verður sem kemur til með að fagna sigri í riðlinum er ómögulegt að ráða í og ekki ólíklegt að baráttan um toppsætið verði hörð og mörg lið muni blanda sér í hana. En auðvitað treystum við á að strákarnir okkar tróni á toppnum í lok sumars.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica