Í nógu að snúast hjá slysavarnakonum
Hin árleg kaffisala slysavarnadeildarinnar Framtíðar var á sumardaginn fyrsta í húsi slysavarnadeildanna á Höfn. Eygló Illugadóttir sagði að hátt í þrjúhundruð manns hefðu mætt í kaffi hjá félaginu og átt saman ánægjulega stund og notið veitinga. Við slysavarnakonur viljum þakka öllum þeim sem komu til okkar þennan dag kærlega fyrir komuna. Hjóladag héldum við svo 1. maí og komu vel yfir 100 manns og létu skoða hjólin sín og hjálma þrátt fyrir frekar leiðinlegt veður og töluverðan vind eins og ævinlega á hjóladeginum.
Eygló vildi að lokum koma á framfæri þökkum frá stjórn slysavarnardeildarinnar Framtíðar til lögreglu og slysavarnafólks fyrir samvinnuna. Einnig þökkum við Jóni bakara og Vífilfelli fyrir veitingar og Sparisjóði Hornafjarðar fyrir verðlaunin.





Skrifa athugasemd