Maí
Elín og Jón í nýja fyrirtækinu
Elín og Jón í nýja fyrirtækinu

06.05.2004 Maí

Papós kaupir eignir þrotabús Fiskgæða

Gengið hefur verið frá sölu á eignum þrotabús Fiskgæða ehf. og er kaupandi að eignunum Hornfirska fyrirtækið Papós ehf. sem er í eigu hjónanna Elínar Þorvaldsdóttur og Jóns Hafdal. Papós ehf. kaupir fasteignina að Álaugarvegi 3 ásamt öllu því sem henni fylgir. Jón sagði að nú þegar væri byrjað að gera húsnæðið tilbúið undir vinnslu, það er verið að þrífa allt hátt og lágt og lagfæra það sem lagfæra þarf. Við stefnum að því að byrja vinnslu í húsinu í næsta mánuði sagði Jón að lokum.


Samkvæmt upplýsingum er skiptum þrotabúsins ekki lokið, en frestur til að lýsa kröfum í búið lýkur 23. maí og kemur þá í ljós hvað verður hægt að greiða upp í lýstar kröfur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica