Einar Björn bjartsýnn á sumarið
Nú styttist í að ferðaþjónustan við Jökulsárlón hefji sumarstarfið. Einar Björn Einarsson sagði að verið væri að flytja hjólabátana og annað búnað vestur að Jökulsárlóni og allt yrði tilbúið fyrir 15. maí. Það er alltaf töluvert að gera í maí sagði Einar Björn, alltaf einhverjir hópar á ferðinni og töluverð lausa traffík og auðvitað reynum við að veita eins góða þjónusta og mögulegt er, þrátt fyrir fátt starfsfólk á þeim tíma. Í byrjun júní er svo allt komið á fulla ferð og þá er oft líf og fjör við Jökulsárlón enda hátt í fjörutíu þúsund gestir sem sækja okkur heim á hverju sumri. Ég er bjartsýnn á sumarið eins og ævinlega sagði Einar Björn enda alltaf logn og blíða í Suðursveit. Starfsmenn við Jökulsárlón eru 25 og við höfum opið hérna til 15. september.
Hin stórglæsilega flugeldasýningin sem haldin hefur verið við Jökulsárlónið um verslunarmannahelgina verði auðvitað á sýnum stað, en sú nýbreytni verði tekin upp þetta árið að við munum rukka inn á svæðið og mun öll innkoman renna til góðgerðarmála sagði Einar Björn að lokum.





Skrifa athugasemd