Maí
Við löndunarbrygguna í Álaugarey
Við löndunarbrygguna í Álaugarey

05.05.2004 Maí

Aukin gæsla við erlend skip í Hornafjarðarhöfn



Þann 1. júlí nk. tekur gildi ný alþjóðleg siglingaverndaráætlun sem er samkvæmt samþykkt Alþjóðasiglingastofnunarinnar IMO, sem er ein af stofnunum Sameinuðu Þjóðanna, áætlunin felur í sér sérstakar ráðstafanir til að auka og efla siglingavernd í skipum sem eru í alþjóðlegum siglingum og hafnavernd í höfnum sem þjóna slíkum skipum. “Þetta er hluti af alþjóðlegum öryggisráðstöfunum gegn vá og hryðjuverkum og nær yfir allar hafnir þar sem tekið er á móti skipum erlendis frá og eins þeim sem fara héðan til erlendra hafna” segir Ari Jónsson formaður hafnarnefndar Hornafjarðar.

Þetta er aukin gæsla og afmörkun á svæðum þar sem skip leggjast að þ.e. vernduð svæði sem eru tilgreind og þar er settur upp búnaður sem tilheyrir svo sem girðingar og aukin gæsla verður við skipin. Þetta verður að hluta samvinna hjá tolla- lögreglu- og hafnaryfirvöldum. Það þarf meiri viðbúnað en áður í höfninni og vöktun verður aukin meðan skip er í höfn og þá verður bryggjusvæðið lokað með sérstökum girðingum. Flest skip leggjast að bryggju í Álaugarey og samkvæmt áætlun verður þessi viðbúnaður til staðar 1.júlí segir Ari.

Í bréfi til hafnarstjórnar frá Siglingastofnun vegna verndaráætlunar Hornafjarðarhafnar segir: “Verndaráætlunin er vel unnin og skipulega sett fram. Við vitum að það hefur farið fram mikil vinna vegna siglingaverndar og hér með vil ég hrósa ykkur fyrir velunnin störf”. Á síðasta ári komu 63 erlend skip og algengt er að þau stoppi í Hornafjarðarhöfn í u.þ.b.12 tíma.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica