Unnið að stefnumörkun og námskrár innan Sindra
Á dögunum heimsótti Vanda Sigurgeirsdóttir nemendur í Hafnar- og Heppuskóla ásamt því að funda með kennurum, foreldrum, stjórnum íþróttadeilda og þjálfurum. Í framhaldi af heimsókn Vöndu var skipaður verkefnahópur sem hefur það að leiðarljósi að vinna að stefnumörkun og námskrár innan Sindra. Þetta er hið þarfasta verkefni sem vonandi á eftir að stuðla að minna brottfalli unglinga úr íþróttum. Vanda mun senda frá sér samantekt úr heimsókninni og mun m.a. benda á það sem hún mundi vilja leggja áherslu á og það sem hún telur að betur mætti fara í þjálfun ungmenna á Hornafirði.
Vonandi á þessi heimsókn Vöndu eftir að skila sér út í samfélagið okkar, enda greinilegt að tími var kominn til að brjóta aðeins upp munstrið og fá ný sjónarhorn í umræðuna um íþróttaiðkun unglinga.





Skrifa athugasemd