Hjólað í vinnuna
Annað árið í röð stendur Ísland á iði fyrir hjólreiðaátaki undir nafninu “Hjólað í vinnuna” Um er að ræða heilsueflingarverkefni fyrir fyrirtæki og er meginmarkmið þess að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. “Hjólað í vinnuna” er keppni á milli fyrirtækja þar sem starfsfólk er hvatt til að hvíla bílinn og nota reiðhjólið í staðinn. Í keppninni í ár er sú nýbreytni tekinn upp að þeir sem ganga, skokka eða nota línuskauta geta tekið þátt. Keppt er í 6 flokkum eftir fjölda starfsmanna hjá fyrirtækjum og eru keppnisgreinarnar tvær, flestir þátttökudagar og flestir kílómetrar.
Nú er um að gera fyrir Hornfirsk fyrirtæki að skrá sig til keppni og sýna alþjóð hvers við erum megnug. Allar upplýsingar um keppnina er hægt að nálgast á isisport.is.





Skrifa athugasemd