RKÍ Hornafjarðardeild með tvö námskeið í maí
Rauði krossinn, Hornafjarðardeild ætla að bjóða almenningi upp á tvö námskeið sem haldin verða á Höfn í maí. Þetta eru 16 og 8 kennslustunda námskeið í skyndihjálp. Lengra námskeiðið er fullt námskeið þar sem farið er í alla grunnþætti og er gott fyrir þá sem ekki hafa farið áður á námskeið og þurfa t.d. vinnu sinnar vegna að vera í góðu formi hvað þetta snertir segir Ásgerður Gylfadóttir formaður Hornafjarðardeildarinnar. Átta stunda námskeiðið er svona upprifjunar námskeið fyrir þá sem hafa áður farið á námskeið, en talið er mjög gott fyrir fólk að rifja þetta upp á tveggja ára fresti. Ef komið er að þar sem slys hefur orðið er mikilvægt fyrir fólk að vita hvernig bregðast skuli við og á lengra námskeiðinu er bæði farið yfir atriði sem varða slys, endurlífgun, sjúkdóma og margt fleira.
Æskilegt er að þeir sem sækja námskeiðin séu orðnir 14 ára. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Guðbrandur Jóhannsson.
Á sl. hausti gaf Hornafjarðardeildin 10.bekk Heppuskóla 16 stunda námskeið í skyndihjálp og Ásgerður segir það stefnu deildarinnar að á hverju hausti gefi deildin 10. bekk slíkt námskeið. Krakkarnir sem ljúka mámskeiðinu fá þátttökuskírteini sem þau fá víða metin sem einingu í framhaldsnámi.
Rauða krossdeildin hefur flutt aðstöðu sína að Hafnarbraut 40 ( þar sem fasteignasalan Hraun var) og þar verðum við með opið hús 8.maí og sýnum fólki aðstöðuna og hvað deildin er að gera segir Ásgerður. Við verðum þar með hjartastuðtæki eins og það sem við gáfum lögreglunni til sýnis, en einnig verður kennt á það á námskeiðinu.
Ásgerður segir að nú eigi að fara að skoða ýmis verkefni sem deildin muni svo kynna og bjóða fólki að taka þátt í og hún vill minna á að Rauði krossinn er með einstaklings aðstoð og aðstoð við fjölskyldur í neyð ef eitthvað óvænt kemur uppá.
Rétt er að minna á að Rauði krossinn er með gám úti í gámaporti þar sem tekið er við fötum.
Rauða krossdeildin á Hornafirði var stofnuð í Heppuskóla 27.september 1975 og hét þá Rauða krossdeild Austur-Skaftafellssýslu og var fyrsti formaður hennar sr.Gylfi Jónsson prestur í Bjarnanesi.





Skrifa athugasemd